












Lýsing
Aðkoma er að sumarhúsasvæðinu frá þjóðvegi 52 (Snæfellsvegur) sjá hér á Google Maps. Alls er gert ráð fyrir 37 lóðum innan svæðisins og skulu hús vera frá 100-400 fm að stæðr skv. byggingarskilmálum er fram koma í deiliskipulagi sem sjá má hér. Einnig eru upplýsingar á vefsíðu sumarhúsasvæðisins hér.
Brókarvatn 8 er 17525 fm sléttlend lóð fyrir neðan veg sem hallar ögn niður að vatni, glæsileg byggingarlóð með óhindruðu útsýni yfir vatnið. Sjá nánar skipulag svæðisins.
Lóðin verður stofnuð fyrir kaupsamning og ber seljandi þann kostnað. Uppgefið verð miðast við stofngjald leigulóðar en Í boði er einnig að kaupa lóðina sem eignarland á 11.250.000. Ársleiga fyrir leigulóð er 375.500 á ári og í boði er samningur til 50 ára eða lengur ef óskað er.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is