Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson
Vista
einbýlishús

Stöðulsholt 31

310 Borgarnes

90.000.000 kr.

530.035 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2335564

Fasteignamat

80.800.000 kr.

Brunabótamat

93.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
169,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu:

Stöðulsholt 31, 310 Borgarnes. 
Húsið er vel staðsett 170 fm einbýlishús í grónu hverfi. Þar af er bílskúr 37,7 fm skv skráningu HMS  Byggingarár hússins er 2022  og er hús og lóð smekklega frágengið með vönduðum hætti. Rúmgóður sólpallur er með 3 hliðum hússins.  Bílastæði og stétt eru hellulögð.  

Um er að ræða timburhús á steyptum grunni. Það er klætt að utan með lituðu báruáli, þak er með lituðu stáli og með góðum þakhalla. Þakkantur -rennur og niðurfallsrör smekklega frá gengin. Gráir litatónar á þaki, rústrautt báruál og lerki undir gluggum.
Gluggar og hurðir eru timbur/ál og allt ytra byrði því viðhaldslétt. 

Nánari lýsing:

Gengið er inn í rúmgóða forstofu. Þar á vinstri hönd er forstofuherbergi. Inn af forstofu er alrými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, upptekin loft, góðum gluggum og góðu útsýni. Gengt er úr stofu út á sólpall3 svefnherbergi  og baðherbergi eru á svefnherbergisálmu. Þvotttahús er þar innaf. Gengt er úr þvottahúsi út á sólpall og einnig er innangegnt þaðan í bílskúr en inn af honum er geymsla

Forstofa: Parket á gólfum, góður fataskápur.
Svefnherbergi: Eru 4, parket á gólfum og rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum upptekin loft, gengt út á sólpall.
Eldhús: Rúmgóð dökk innrétting með eyju. Helluborð og háfur, Bakarofn og örbylguofn í innréttingu og innbyggð uppþvottavél. Ísskápur getur fylgt eftir samkomulagi.
Baðherbergi: Rúmgott. Microsement á veggjum og gólfi, vegghengt salerni og walk-in sturta. Góð hvít innrétting með haldklæðaofni á vegg.
Þvottahús: Rúmgott með útgengi út á sólpallinn. Epoxy á gólfum. Stór innrétting og mjög góð vinnuaðstaða. Úr Þvottahúsi er innangegnt í bílskúrinn.
Bílskúr: Epoxý á gólfum, rafdrifin bílskúrshurð og góð innrétting.
Geymsla: Er í enda bílskúrsins, epoxy á gólfum og gluggi með opnanlegu fagi.
Sólpallur er klæddur lerki. Skjólveggir hafa ekki verið settir upp.

Lóð og bílastæði er fullfrágengið. Bílastæði er hellulagt og gangstétt meðfram húsinu. Ecoraster jarðvegsgrind með möl í austuhluta lóðarinnar, hentugt sem auka bílastæði. Að öðru leyti er grasflatir og möl ásamt trágróðri. 

Hér er um mjög góða eign að ræða. Fallegar gönguleiðir - skóli, leikskóli og þjónusta í næsta nágrenni í þessu vinsæla og vaxandi bæjarfélagi í Borgarnesi.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.


Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

img
Þórarinn Halldór Óðinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone
img

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. nóv. 2022
33.450.000 kr.
63.500.000 kr.
169.8 m²
373.969 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Nes fasteignasala ehf

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
phone

Þórarinn Halldór Óðinsson

Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi