Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2019
87,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Lind fasteignasala og Sigrún Ragna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna snyrtilega og einstaklega vel skipulagða 3ja herbergja útsýnisíbúð í vönduðu 11 hæða lyftuhúsi við Bæjarlind 5, 201 Kópavogur. Stæði í bílageymslu fylgir merkt 01B19
Stærð eignarinnar er alls 87,4 fm. og skiptist samkæmt Þjóðskrá Íslands 82,7 fm íbúð og 4,7 fm geymslu.
Íbúð númer 703 skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, borðstofu, stofu og eldhús. yfirbyggðar 6,1 fm. vestursvalir út frá stofu. Magnað útsýni.
Húsið er allt klætt með viðhaldslítilli flísaklæðningu. Útidyr sameignar eru rafdrifnar sem auðveldar hreyfihömluðum aðgang að húsinu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Snyrtileg hvít sprautulökkuð innrétting með fræstum höldum og mjúklokun á skúffum, efri skápar eru með hnotuáferð, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, örbylgjuofn og spanhelluborð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi II: Fataskápur, parket á gólfi.
Eldhús og stofa mynda eitt opið rými, parket á gólfum.
Baðherbergið: Gólf flísalagt með 60x60 cm. flísum, hluti veggja er flísalagður upp í loft, hvít höldulaus innrétting með mjúklokun á hurðum og skúffum. Borðplata 20 mm laminate grá/brún að lit.
Speglaskápur með innfræstri lýsingu undir, handklæðaofn, Walk-in sturta.
Sameign er sérlega glæsileg með dökkum hurðum, Hljóðdempandi loft með innfelldri og falinni lýsingu frá Lumex í stigagöngum
Tvær lyftur eru í húsinu.
Bílageymsla: Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir merkt B19 skráð 27,9 fm.samkvæmt FMR. Bílageymsla er upphituð. Hleðslustöð fylgir..
Hjóla- og vagnageymsla eru í sameign.
Hornsteinar arkitekar og Byggingarfélagið Bestla fengu hönnunarverðlaun 2019 frá Kópavogsbæ vegna Bæjarlindar 5.
Þar kemur fram í skýrslunni að innra skipulag hússins er gæði og góð nýting. Gæðin koma m.a. fram í innbyrðis afstöðu íbúðanna þær hafa allar tvær úthliðar og flestar þrjár. Birtudreifing verður því sérstaklega góð. Íbúðunum er skipt upp í tvö notendasvæði: Fjölnotarými (stofa – borðstofa – eldhús) og einkarými (svefnherbergi). Gangarými er haldið í lágmarki, bæði í íbúðum og sameign. Inngangar í húsið eru tveir: úr suðri af 1. hæð og frá bilastæðum og aðkomu norðan hússins. Einnig má benda á það að öll hönnun íbúða í húsinu standast algilda hönnun og henta því öllum.
Arkitekt: Hornsteinar
Verkfræðihönnun: VHÁ/ EFLA
Raflagnahönnunn: Lumex
Allar upplýsingar veitir Sigrún Ragna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali í síma 7737617 eða sigrun@fastlind.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. júl. 2020
71.400.000 kr.
60.100.000 kr.
10703 m²
5.615 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025