Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, herbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi. Harðparket á gólfum og flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 71,9 fm. og þar af er geymsla skráð 6 fm.
Fasteignamat fyrir árið 2025 verður 41.900.000 kr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með hurð inn í íbúðarými, fataskápur upp í loft og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft og parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með snyrtilegri innréttingu og parketi á gólfi.
Stofa og eldhús mynda eitt alrými og parket á gólfi. Útgengt er út á sérafnotareit úr stofunni.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, upphengdu salerni, sturta og flísar á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar og inn af baðherbregi með skolvask og borð, flísar á gólfi.
Geymsla íbúðar er á sömu hæð og íbúðin.
Íbúðin er öll lögð vönduðu harðparketi fyrir utan forstofu, baðherbergi og þvottahús.
Húsið er álklætt að utan með viðarklæðningu að hluta og næg bílastæði eru á lóðinni.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla er í sameign.
Vel skipulögð eign í góðu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Brynja Kristín Gunnarsdóttir lgfs í síma 691-6066 eða á netfanginu brynja@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.