Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vilhjálmur Bjarnason
Vista
einbýlishús

Aðalstræti 12

470 Þingeyri

81.700.000 kr.

229.108 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2125390

Fasteignamat

31.100.000 kr.

Brunabótamat

161.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1973
svg
356,6 m²
svg
13 herb.

Lýsing

Aðalstræti 12.  Þingeyri. Hef fengið í sölu gamla og fallega póst- og símstöðvarhúsið á Þingeyri sem er sjarmerandi hús á þremur hæðum með flottu útsýni og óendanlegum möguleikum.
Eigandi eignarinnar hefur ekki notað húsið mikið undanfarinn áratug þar sem hann er búsettur í Noregi.
Hann hafði hugsað sér að skipuleggja eignina upp á nýtt að innan og fá leyfi til að hafa gisti og ferðaþjónustu fyrir bæði erlenda og innlenda ferðamenn þegar hann mundi flytja aftur heim en hann er ennþá í Noregi. 
Eigandinn hefur því ákveðið að gefa öðrum kost á því að nýta þau tækifæri sem vissulega eru fólgin í húsinu og staðsetningu þess bæði innan bæjarins á Þingeyri og innan vestfjarðakjálkans. 
Mögulegt er að útbúa góða herbergjaútleigu í húsinu með 8 til 12 herbergjum á hverri hæð. 
Hægt er að nýta húsið sem stórt og flott einbýlishús eða afdrep fyrir stórfjölskyldu í rólegheitunum á Þingeyri.
Svo er hægt að skipta eigninni niður í nokkrar íbúðir hvort sem er til úteigu eða sölu en mikill skortur er á íbúðar- og leiguhúsnæði af öllum stærðum á þessu svæði.  
Húsið sjálft virðist vera vel byggt í upphafi og í nokkuð góðu standi að utan sem innan miðað við aldur og fyrri störf.
Húsið er þrjár hæðir sem eru skráðar um 138 fm hver hæð og er það skráð samtals 416.6 fm og sagt byggt 1973.
Míla á 60 fm af neðstu hæðinni austanmegin sem ekki er verið að selja að þessu sinni en þar er aukin lofthæð sem þurfti að vera vegna þeirra tækja sem Síminn var að nota á þeim tíma. Hugsanlega er hægt fyrir nýja eigendur að fá að kaupa þessa 60 fm af Mílu á einhverjum tímapunkti. 
Eignin sem verið er að selja er því tvær efstu hæðirnar og sá hluti af neðstu hæðinni sem Míla á ekki og eru það um 356.6 fm sem skiptist á eftirfarandi hátt samkvæmt (upprunalegum) teikningum sem eru hér með í viðhengi.
Efsta hæðin er skráð 138 fm en þar er í dag nokkuð upprunaleg, rúmgóð og björt 5 herbergja séríbúð sem gerð var fyrir fjölskyldu póst og símstöðvarstjóra á sínum tíma. 
Götuhæðin sem snýr að Aðalstræti er skráð 138 fm en þar voru afgreiðslur pósts og síma fram til eitthvað upp úr aldamótunum 2000. Þessi hæð er björt og rúmgóð með nánast upprunaleg með innbyggðum manngengum peningaskáp og gömlu fallegu símklefunum. 
Jarðhæðarhlutinn er um 78 fm og snýr hann og er með glugga í norður og vestur. Þarna eru að hluta frekar hrá rými sem voru notuð undir geymslur og tækjabúnað tengdan rekstri Pósts og síma á sínum tíma ásamt litlu herbergi undir stiganum og sérinngangi um forstofu að stóru herbergi með wc aðstöðu og sérinngangi sem var notað fyrir bílstjórana á póstbílunum þegar þeir kæmu á öllum tímum sólarhringsins á meðan Pósturinn var ennþá alvöru fyrirtæki. Kompa með sérinngangi er á vesturveggnum undir vesturinnganginum á götuhæðina og sennilega er hún óskráð. Það eru allavega tveir sérinngangar á báðum neðri hæðunum og svo er sameiginlegt og rúmgott stigahús með fallegum stiga í vesturenda sem tengir allar þrjár hæðirnar saman en einnig væri hægt að nota þann inngang sem sérinngang á efstu hæðina.
Efsta þakplatan í húsinu er steypt og hefur seljandi heyrt að í einhverjum eins húsum, sem eru allt í kringum landið, hafi verið gert ráð fyrir að hægt væri að byggja eina hæð ofan á þessi hús.
Ekki er hægt að lofa þessu en það þarf auðvitað alltaf að láta skoða allar breytingar af fagfólki og sækja um leyfi fyrir öllum breytingum á húsinu og nýtingu þess til bæjar- og eða stjórnvalda hverju sinni eins og venjan er.
Varðandi stækkun á húsinu þá er gert ráð fyrir því í nýju deiliskipulagi að hægt sé að stækka húsið um 83.4 fm.
Lóðin fyrir neðan að Vallargötu 5 liggur að þessari lóð í norður og er hún laus og það er mögulegt að sækja um hana og þá er mögulegt að stækka húsið í þá átt ef vilji er fyrir því.
Eigandi eignarinnar og fasteignasalinn hvetja þá sem hafa áhuga á húsinu til að skoða húsið vel fyrir tilboðsgerð og þar á meðal gluggana, glerið og þakið þar sem seljandi hefur ekki búið í húsinu. . 
Miklir möguleikar eru bæði í leigu til túrista og einnig í hvers konar ferðaþjónustutengdri starfsemi eins og kajaksiglingum, sjóstangveiði, hjólaferðum, fjórhjólaferðum, göngur á fjöll og fjörur og allt þar á milli, matar og harðfisksmökkun. Svo má ekki gleyma þvílík ró er á Þingeyri og kannski eru bestu feðirnar sem hægt er að fara þangað og ónýtt auðlind afslappelsis og gera ekki neitt ferðir.

VB Eignir

VB Eignir

Suðurlandsbraut 30. 3 hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
27. sep. 2013
16.300.000 kr.
14.000.000 kr.
416.6 m²
33.605 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
VB Eignir

VB Eignir

Suðurlandsbraut 30. 3 hæð, 108 Reykjavík
phone