Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
raðhús

Sóleyjarimi 73

112 Reykjavík

129.900.000 kr.

618.571 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2276738

Fasteignamat

143.250.000 kr.

Brunabótamat

113.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
210 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Garður
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Verönd

Lýsing

RAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR Á VINSÆLUM STAÐ Í GRAFARVOGI.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 210,0 fm.

Um er að ræða raðhús með innbyggðum bílskúr í átta íbúða raðhúsalengju á tveimur hæðum byggt árið 2006.
Gengið er inn í forstofu á neðri hæð, úr henni er innangegnt í bílskúrinn. Úr forstofu er gengið inn í alrými með stofunni, opnu eldhúsi, borðstofu og stiganum upp á efri hæðina, gestastnyrting er á neðri hæðinni. Útgengt er út í bakgarðinn úr borðstofunni og út á fremri veröndina úr stofunni. Á efri hæðinni er gangur, fjögur rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi, þvottahús og baðherbergi og lítil geymsla. Búið er að bæta einu herbergi við í stað teiknaðs sjónvarpshols samk. teikningum. Útgengt er út á svalir sem snúa til suðurs á efri hæðinni. Bílskúrinn er rúmgóður með geymslu innst inn af.
Gólfhiti er í öllu húsinu og einnig hitalagnir í bílaplani fyrir framan húsið.


Forstofa/gestasnyrting: Rúmgóð flísalögð forstofa með góðum skápum, gestasnyrtingin er flísalögð, vaskur og upphengt salerni.
Eldhús: Opið í stofuna, innrétting með góðu skápaplássi, granít borðplata og parket á gólfi.
Stofur: Bæði stofan og borðstofan eru með parketi á gólfum, útgengt út á skjólgóða suðurverönd úr stofunni og úr borðstofunni er útgengt út í bakgarðinn.
Svefnherbergi: Fjögur rúmgóð svefnherbergi, góðir fataskápar eru í hjónaherberginu og öðru herbergi, innangengt í fataherbergi úr einu herb. og parket á gólfum.
Gangur á efri hæð: Parketlagður og útgengi út á suður svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og gólf, falleg innrétting, baðkar og sér sturta, upphengt salerni.
Þvottahús: Aðgengilegt með neðri skápum og borðplássi, skolvaskur.
Bílskúr: Rúmgóður, skráður 29,9 fm með geymslu inn af. Stórt bílaplan er fyrir framan húsið með upphitun.
Garður: Snyrtilegur frágangur á lóðinni, bílaplan er hellulagt, en stétt á verönd fyrir framan er með stimpilsteypu. Bakgarðurinn er hellulagður og einnig grasflöt.

Falleg, vel skipulögð og snyrtileg eign á mjög góðum og barnvænum stað í Grafarvogi.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf.
GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. mar. 2018
67.000.000 kr.
72.500.000 kr.
210 m²
345.238 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík