Lýsing
Hraunbær 103, íbúð 103, 125 fm ibúð á jarðhæð með palli, Eign í rótgrónu hverfi í Árbæ.
Íbúðirnar fyrir 60 ára og eldri.
Ártúnið er rótgróið hverfi. Gott aðgengi til útivistar.
Stutt er í alla þjónustu, verslun og stofnbraut, stutt í allar áttir.
Hraunbær 103B íbúð 103 Eignin er þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð stærð eignar 125,1m2 matshlutans 0103.
Eigninni tilheyrir geymsla birt stærð 15,8 m2. Eigninni tilheyrir sérnotaflötur stærð 17,4 m2.
Tvö baðherbergi
Sameiginlegur inngangur að íbúð. Komið er inn í forstofu með skápum á hægri hönd er baðherbergi með þvottahúsi innaf. Úr forstofu er gengið inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu, sturta, innrétting með skápum undir handlaug og spegli fyrir ofan handlaug einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Gott aukaherbergi með fataskápum, hjónaherbergi með skápum og baðherbergi innaf. Á baði innaf hjónaherbergi er sturta og snyrting. Eldhús og stofa er eitt rými sem er mjög bjart með útgengt út á 17,4 fm sérafnotarétt.