Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
svg

560

svg

517  Skoðendur

svg

Skráð  23. okt. 2023

fjölbýlishús

Grensásvegur 2ja herb - 5hæð 1B - 0506

108 Reykjavík

71.900.000 kr.

1.062.038 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2519733

Fasteignamat

5.650.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
67,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar fullbúnar nýjar íbúðir við Grensásveg 1B, miðsvæðis í Reykjavík.

Við á Heimili fasteignasölu erum staðsett í næsta húsi (Grensásvegur 3) við þessa glæsilegu byggingu. Hafið samband og við göngum með ykkur yfir götuna og sýnum samdægurs.

Sigríður Lind Eyglóardóttir, sigridur.lind@heimili.is, 899-4703
Gunnlaugur A. Björnsson, gab@heimili.is, 617-5161
Finnbogi Hilmarsson, finnbogi@heimili.is, 895-1098
Anna Sigurðardóttir, as@heimili.is, 898-2017



Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, Grensásvegi 3, 530-6500 eða á heimili@heimili.is  Heimasíðu verkefnisins má finna hér.

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.


Nánari lýsing eignar 0506, 67,7 fm, 2ja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð með mikilli lofthæð sem gerir hana einstaka. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0015.
Komið er inn úr forstofu í stórt bjart opið rými sem er anddyri, eldhús, stofa og borðstofa.  Skápur er við forstofuna. Rúmgott bjart eldhús með eyju og stofa með útgengi á svalir. Stórt hjónaherbergi með skápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, innrétting og sturta sem gengið er inní. Aðstaða fyrir þvottavél/þurrkara er á baðherberginu. 

Stutt lýsing Grensásvegs 1B.
Húsið er 41 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd, aukinni lofthæð og hurðum í yfirstæð og með stórum gólfsíðum björtum gluggum. Þær eru afhentar fullbúnar með parketi, nema votrými sem eru flísalögð.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól. 

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Iwa.
Allt parket á gólfum er vandað harðparket.
Innfelld LED lýsing í eldhúsinnréttingu og í loftum.
Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf frá Eico.
Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe.
Baðherbergi flísalögð með glæsilegum Amani Matt flísum, 60 x 120 cm. Innbyggð blöndunartæki í sturtu.
Gólfhiti er í öllum  íbúðum og hurðir eru tæplega 260 cm á hæð. 
Svalahandrið úr gleri     

Bílakjallari/bílastæði.
Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara verða hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Deilibílar.
Deilibílar verða hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og atvinnustarfsemi á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur verða forskráðir.

Myndir eru 3D af íbúð með samskonar tækjum og innréttingum. Endanleg skil íbúða miðast við skilalýsingu eignarinnar, en þar eru nákvæmar upplýsingar um eignina.
Allar fermetratölur íbúða eru birtar með fyrirvara. Eignaskiptayfirlýsing gildir.

Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimili fasteignasölu, 530-6500 eða á heimili@heimili.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jan. 2024
55.300.000 kr.
70.000.000 kr.
67.7 m²
1.033.973 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone