Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Guðmundsson
Vista
svg

2444

svg

2290  Skoðendur

svg

Skráð  15. nóv. 2023

lóð

Brekkuhús 28

604 Akureyri

8.617.950 kr.

Fasteignanúmer

F7654321

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Frábær staðsetning í sveitinni
 
Fasteignasala Akureyrar hefur nú hafið sölu á lóðum (leigulóðir) á Hjalteyri.  Lóðirnar eru 870-1.040 m2 stórar og má byggja allt að 300m2 hús á lóðunum.   Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. 
 
Hjalteyri
Langar þig að búa á einum fallegasta stað við Eyjafjörð, einungis 15-20 mín. akstur frá Akureyri, auðvelt að stunda vinnu eða skóla í bænum en búa í rólegheitunum í sveitinni.  Skv. deiliskipulagi fyrir Hjalteyri er tilgangur m.a.:  Fjölgun íbúðarlóða í brekkunni við Brekkuhús, fjölgun lóða fyrir frístundahús norðan byggðarinnar, tjaldsvæði, bílastæði og smáhýsi á túni sunnan byggðarinnar á brekkunni, aukin byggð á eyrinni; íbúðir, verslun og þjónusta, samkomusvæði og leiksvæði á eyrinni og göngustígur umhverfis Hjalteyrartjörn og fuglaskoðunarhús í brekkurótum ofan tjarnar svo nokkuð sé nefnt. 
 
Þéttbýlið á Hjalteyri byggðist upp nokkru fyrir aldamótin 1900. Var þar verslunarstaður og
útgerðarstöð, um tíma var mikil síldarvinnsla á Hjalteyri og þyrptist þangað fjöldi fólks á sumrin,
bæði innlent og erlent.  Athafnamaðurinn Thor Jensen stofnaði fyrirtækið Kveldúlf hf. sem keypti
Hjalteyri og jarðir upp til fjalls.  Árið 1937 byggði það stærstu síldarverksmiðju í Evrópu á Hjalteyri
sem var starfrækt til 1966.  Eftir að síldin hvarf breyttist atvinnulífið í plássinu.  Smábátaútgerð jókst
og önnur starfsemi tók við s.s. niðursuða, fiskverkun KEA, hausaþurrkun og tilraunir með lúðueldi.  Í
dag er þar smábátaútgerð og ýmis starfsemi sem fram fer í síldarverksmiðjunni. Síldarverksmiðjan er
ráðandi í yfirbragði byggðarinnar á eyrinni vegna stærðar sinnar en þyrping gamalla húsa við
höfnina og undir brekkurótinni setur svip á byggðina og gefur henni ákveðin einkenni.  Nýrri byggð er
uppi á brekkunni.  Í brekkurótinni og á eyrinni standa elstu húsin í þorpinu en uppi á brekkunni er byggð frá miðbiki síðustu aldar. Utar á eyrinni er gamla síldarverksmiðjan en hún hýsir í dag ýmsa athafnastarfsemi og sýningarsal fyrir listviðburði. Richardshús, reisulegt íbúðarhús, stendur nyrst á brekkubrúninni. Var það byggt fyrir framkvæmdastjóra síldarverksmiðjunnar, Richard Thors. Einnig var annað glæsihús, Ásgarður, byggt fyrir verksmiðjustjórann, Pétur Jónsson. Stendur það stakt fremst á
brekkubrúninni.
 
 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasala Akureyrar ehf

Fasteignasala Akureyrar ehf

Skipagötu 1, 600 Akureyri
phone
Fasteignasala Akureyrar ehf

Fasteignasala Akureyrar ehf

Skipagötu 1, 600 Akureyri
phone