Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
svg

289

svg

228  Skoðendur

svg

Skráð  15. júl. 2026

atvinnuhúsnæði

Álhella 20M

221 Hafnarfjörður

11.900.000 kr.

452.471 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515098

Fasteignamat

10.150.000 kr.

Brunabótamat

11.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2023
svg
26,3 m²
svg
0 herb.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Nýlegt 26,3 m2 geymsluhúsnæði við Álhellu 20M í Hafnarfirði.
Engin VSK-kvöð er á eigninni. Eignin er laus við kaupsamning.

Bilið er með vélslípuðu gólfi og niðurfalli.
Vaskur með heitu og köldu vatni er fremst í bilinu. Ofn er innst í bilinu.
Bílskúrshurð (2,6m x 2,5m) með inngönguhurð, búið er að setja tengil fyrir rafdrifinn hurðaopnara.
Rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni.
Lofthæðin er frá 3,1m til 4,26m. Innra mál bilsins er 3,5m x 6,8m.
Sameignileg salernisaðstaða er á svæðinu.
Malbikað er framan við húsið.

Útveggir: Allar veggja samstæður eru gerðar úr forgerðum steinullareiningum (harðpressuð steinull sem klædd er með 0,6mm þykku aluzinki.) Einingarnar eru 100 mm á þykkt
Þak: Þak einingar eru gerðar úr 150 mm þykkum steinullareiningum.
Gólf: Gólf er steypt, járnbent og vélslípað með niðurfalli.
Raflagnir: Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum og eru sýnilegar, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu í hverjum skúr
Vatnslagnir: Vaskur með heitu og köldu vatni, ofn til upphitunar innst í skúrnum.
Snyrting: Snyrting er staðsett í C húsi, matshluta 03 og er hún í sameign allra mhl (01,02,03,04 og 05.)
Bílastæði: Bílastæði á lóð eru 58 stk, þar af 5 fyrir hreyfihamlaða.

Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone