Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2023
93,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð á góðum stað að Vesturvin, Ánanausti 1 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin telur 93,8 fermetra og fylgir með sér geymsla í kjallara. Íbúðirnar að Vesturvin eru vandaðar með ítölskum innréttingum, stein á borðum, gólfsíðum gluggum og hita í gólfi. Íbúðin skiptist í forstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, samliggjandi eldhús og stofu ásamt 11,9 fm sérafnotareit.- Hágæða ítalskar innréttingar frá Cassina.
- Borðplötur úr steini.
- Gólfsíðir gluggar.
- Gólfhiti.
- Vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens.
Nánari lýsing :
Forstofa með vönduðum fataskápum með inbyggðri lýsingu sem ná upp í loft.
Svefnherbergið er við forstofu með parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með vönduðum fataskápum sem ná upp í loft.
Baðherbergið er með walk in sturtu, vegghengdu salerni, vandaðri innréttingu og handklæðaofni.
Eldhúsið er vandað með stein á borði og innréttingu frá ítalska framleiðandanum Cassina. Heimilistæki frá Miele og Siemens.
Stofan er samliggjandi við eldhúsið og þaðan er útgengt á sérafnotaflöt.
Gólfefni eru parket og flísar.
Sérgeymsla skráð 9,5fm ásamt sameiginlegri hjólageymslu í sameign.
Ath : Möguleiki á að kaupa eignina með sérbílastæði í bílakjallara á 90.900.000kr
Nánari upplýsingar veitir:
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. jún. 2024
33.600.000 kr.
90.300.000 kr.
20105 m²
4.491 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026