Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Skarðshlíð 29 íbúð 301

603 Akureyri

45.500.000 kr.

502.208 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150371

Fasteignamat

39.200.000 kr.

Brunabótamat

40.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1971
svg
90,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun **

Skarðshlíð 29 íbúð 301 - Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð, efstu í austur enda - stærð 90,6 m²


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. 

Forstofa er með flísum á gólfi og opnu hengi.
Eldhús, flísar á gólfi og snyrtileg hvít sprautulökkuð innrétting með flísum milli skápa. AEG ofn og helluborð.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Í stofu er ljóst plast parket á gólfi og úr stofunni er hurð út á steyptar suður svalir með svalalokunarkerfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu plast parketi á gólfi og fataskápum. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Tengi eru inn á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með hillum og hin er í kjallaranum, með lökkuðu gólfi og hillum. 

Annað
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Stórar suður svalir með svalalokun
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla.
- Eignin er laus til afhendingar 1.6.2024
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. des. 2017
17.650.000 kr.
27.000.000 kr.
90.6 m²
298.013 kr.
14. okt. 2014
14.100.000 kr.
18.600.000 kr.
90.6 m²
205.298 kr.
15. ágú. 2011
12.850.000 kr.
11.500.000 kr.
90.6 m²
126.932 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone