Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Vilborg G. Hansen
Vista
fjölbýlishús

Vífilsgata 11

105 Reykjavík

31.500.000 kr.

1.369.565 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2011071

Fasteignamat

30.800.000 kr.

Brunabótamat

17.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1938
svg
23 m²
svg
1 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: vel skipulagða studioíbúð í kjallara á rólegum stað í Norðurmýrinni við Vífilsgötu 11, miðsvæðis í Reykjavík. Mjög nett og vel nýtt rými.

§  Sameiginlegur inngangur í kjallara. 
§  Eignin er mjög mikið endurnýjuð.


Nánari lýsing:
Komið er inn í sameiginlegan gang og síðan hol. Holið tengir saman íbúðina, sem samanstendur af eldhúsi, stofu/herbergi & baði.
Eldhús: er með lítilli nettri eldhúsinnréttingu. Pláss fyrir ísskáp innan innréttingar. Lítil eldavél með 2ur hellum og litlum ofni.
Stofa/herbergi: er með glugga á tveimur hliðum í suður og austur. 
Baðherbergi: með flísum á gólfi og hluta af veggjum. Klósett, innrétting & sturta.

Þvottahús í sameign: hver með sína vél.
Geymsla í kjallara í sameign ásamt kaldri geymslu undir tröppum.
Hjólagerði aftan við hús er líka í sameign.

Sameiginlegur garður framan og aftan við hús.

Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur eftirfarandi verið gert: 
Árið 2000 var þakið endurnýjað þeas. skipt var um bárujárn og pappa, eins var þakkantur klæddur.  Tréverkið í þaki var í topp standi. 
Árið 2009 voru endurnýjaðar skólplagnir undir húsinu og fram í aðallögn í götu ásamt að settur var brunnur og húsið drenað og skipt um jarðveg og hellur. 
Árið 2023 var húsið múrviðgert og steinað. Skipt var um rennur frá þaki.
Árið 2024 var skipt út öllum gluggum og gleri í eigninni ásamt öllum gluggum og gleri í sameign.
Það er nýbúið að endurnýja allt parket. Salernið, og ofn í herbergi. Útihurð og geymsluhurð úti er ný smíðuð úr mahony harðvið.
Búið er að tengja ljósleiðara og box/router inn.
 
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð í kjallara 23,0 fm. Byggingarár hússins er 1938. 
Lóðarleigusamningur var endurnýjaður 2015. Þó að húsin Vífilsgata 9 & 11 séu sambyggð, þá eru lóðirnar aðskyldar samkvæmt lóðasamningi við Reykjavíkurborg, 210 fm hvor.
Eignaskiptayfirlýsing fyrir eignina er frá 1961 og inniheldur aðeins hlutfallstölur en engar teikningar.

Mjög nett og vel nýtt íbúð, sem vert er að skoða.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjvík.

Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is 
Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.                 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

img
Auður Sigr Kristinsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Bær
Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
img

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. júl. 2024
23.200.000 kr.
28.500.000 kr.
10001 m²
2.850 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík

Auður Sigr Kristinsdóttir

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík