Lýsing
Miklaborg kynnir: Virkilega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á vinsælum og eftirsóttum stað í Kópavogi. Eignin er á 1.hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílakjallara og 28.9 fm hellulagðri verönd. Birt stærð íbúðar er 103 fm ásamt sér bílastæði í bílakjallara. Eignin skiptist í forstofu, stofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og geymslu.
Falleg björt og vel hönnuð eign, staðsett í rólegu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, íþóttastarf, leik- og grunnskóla. Jafnframt eru fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@miklaborg.is
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Stofan myndar opið rými með eldhúsi og útgengt er á hellulagða 28,9 fm verönd.
Eldhúsið er rúmgott með fallegri eikarinnréttingu sem nær alla leið upp í loft, flísalagt milli skápa og gráar flísar á gólfi. AEG ofn í vinnuhæð, helluborð, vifta, ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði með parket á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergið er rúmgott með bæði sturtuklefa og baðkari. Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting og handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu með handlaug.
Geymsla er innan sameignar 10,9 fm.
Með eigninni fylgir gott stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Íbúðin er í góðu húsi og sameignin er öll til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed löggildur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@miklaborg.is