Upplýsingar
Byggt 1993
49,8 m²
0 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Hagi Breiðavík lóð 20, Rangárþingi ytra.Um er að ræða 49,8 fm sumarhús á eignarlóð við Eystra Gíslholtsvatn í Rangárþing ytra. Húsið er byggt árið 1993 úr timbri og er klætt að utan með standandi timburklæðningu en bárujárn er á þaki. Að innan skiptist húsið í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, stofu og eldhús opið í eitt. Spónaparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi þar er dúkur. Á baðherberginu er sturta, salerni og vaskur. Í eldhúsi er viðarinnrétting. Úr stofu er útgengt á verönd. Við bústaðinn er verönd með heitum potti.
Lóðin er mjög falleg og með miklum gróðri. Stærð lóðarinnar er 1.200 fm Auk þess er sameiginlegt leiksvæði með leiktækjum og sparkvöllur er á svæðinu. Eignin er í skipulögðu sumarhúsahverfi sem telur 24 lóðir. Svæðið er afgirt með læstu hliði.
Silungsveiði er í Eystra Gíslholtsvatni. Veiðiréttur fylgir í vatninu. Búið er að útbúa litla höfn þar sem gott er að koma bátum út á vatnið.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is