Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
einbýlishús

Lækjarhjalli 22

200 Kópavogur

178.500.000 kr.

644.172 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2064132

Fasteignamat

178.550.000 kr.

Brunabótamat

134.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1990
svg
277,1 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 12. apríl 2026 kl. 15:00 til 15:45

Opið hús: Lækjarhjalli 22, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd sunnudaginn 12. apríl 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:45.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt og vandað 277,1 fm einbýlishús með bílskúr við Lækjarhjalla 22 í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið sem er á tveimur hæðum er einstaklega vel staðsett en það er innst í botnlangagötu og vestan við húsið er opið svæði. Stór, skjólsæll og gróinn garður er til suðurs. Arkitekt hússins er Benjamín Magnússon. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins og þakgluggar. Samkvæmt Fasteignaskrá er húsið skráð 277,1 fm en þar af er bílskúrinn skráður 28,2 fm. Hluti af rými á neðri hæð hússins er gluggalaus. Til eru teikningar frá árinu 2003 frá sama arkitekt sem gera ráð fyrir að settir séu gluggar og dyr á rýmið.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson Lögg. fasteignasali, tölvupóstur sverrir@eignamidlun.is


Efri hæð:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða og flísalagða forstofu með fatahengi.
Snyrting: Innaf forstofu er flísalögð snyrting með glugga.
Gangur: Frá forstofu er komið inn á gang. Gólf er flísalagt. Mjög mikil lofthæð er á gangi og þakgluggar. 
Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri sérsmíðaðri viðarinnréttingu. Borðplata er úr granít. Ofn og háfur úr stáli. Áfast lítið eldhúsborð.
Stofa: Gengið er niður nokkur þrep í stofuna. Fallegur horngluggi í stofu. Gólf í stofu er málað. Gengið er út í garð úr stofu.
Borðstofa: Gengið er í borðstofu frá gangi og eldhúsi. Gólf er flísalagt. Hægt er að ganga út í garð úr borðstofu.
Herbergi:  Rúmgott flísalagt herbergi með fallegum bogadregnum glugga. Herbergið getur nýst sem vinnuherbergi og/eða svefnherbergi.

Neðri hæð:
Hol/gangur: Steyptur flísalagður stigi er á milli hæða. Komið er í flísalagt hol. Gengið er út í garð frá gangi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og var yfirfarið og standsett fyrir ca fimm árum. Baðkar og sturta. Innrétting með granítborðplötu.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með skápum. Linoleum dúkur á gófi. Stór gluggi að garði. 
Herbergi II: Bjart og fallegt herbergi sem hægt er að nýta sem vinnuherbergi eða svefnherbergi. Linoleum dúkur á gólfi.
Einnig eru  þrjú gluggalaus herbergi sem nýta má á ýmsan hátt. Rúmgóð rými sem væri hægt að nýta sem sjónvarpsherbergi, skrifstofa, tómstundaherbergi, fataherbergi, geymsla eða fyrir aðra sértæka starfsemi sem krefst næðis. Gengið er niður nokkur þep í eitt þeirra sem nýtt var sem vinnustudió. Rýmin eru gluggalaus en á teikningu frá árinu 2003 er gert ráð fyrir gluggum og hurð út í garðinn. Linoleum dúkur er á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Gólf er málað.

Bílskúr: 28,1 fm rúmgóður bílskúr með góðri lofthæð. Innangengt er í bílskúrinn frá gangi á efri hæð hússins. Sjálfvirkur hurðaopnari. Hiti er í hluta af bílaplani.

Mjög falleg og vönduð eign á eftirsóttum stað.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík