Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Rúnar Samúelsson
Andri Sigurðsson
Þórey Ólafsdóttir
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Vista
fjölbýlishús

Skektuvogur 4

104 Reykjavík

62.900.000 kr.

954.476 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2506750

Fasteignamat

59.400.000 kr.

Brunabótamat

44.940.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
65,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Bílastæði
Opið hús: 11. september 2024 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús: Skektuvogur 4 í Reykjavík, íbúð 101 með sérinngang garðmegin, miðvikudaginn 11. september 2024 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngang og afgirtum sérafnotarétti / 18,7 fm verönd í nýlegu fjölbýli við Skektuvogi 4 í Vogabyggð, Reykjavík 

Eignin er skráð 65,9 fm samkvæmt fasteignaskrá HMS, þar af er geymsla 8,1 fm en eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu & borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu, rúmgóð geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.

SMELLTU HÉR til að sækja söluyfirlit en annars veitir ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is.

Nánari lýsing:
Forstofa
með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með dökkri innréttingu, bakarofn í innbyggðum tækjum, kæliskáp og uppþvottavél sem fylgir. Harðparket á gólfi og útgengt á afgirta timburverönd / suður sérafnotarétt.
Svefnherbergi með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni of walk-in sturtu, tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. 
Geymsla í kjallara (8,1 fm).

Eigninni fylgir stæði í bílgeymslu, búið að leggja rafmagn að stæði fyrir hleðslustöð.

Húsið er byggta af ÞG Verk, staðsteypt, einangrað og klætt að utan sem tryggir að viðhald sé í lágmarki. Lóðin er fullfrágengin með malbikuðum stæðum, hellulögn og túnþökum. Sameiginleg garð- og leiksvæði með leiktækjum. 

Vogabyggð er nýtt hverfi í uppbyggingu þar sem eldra iðnaðarhverfi víkur fyrir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa. Hverfið mun tengjast betur Laugarneshverfinu þegar Sæbraut verður lögð í stokk á árunum 2021-2022. Hér er um að ræða skjólsæla perlu á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja rétt hjá meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Einnig er Laugardalurinn innan seilingar. Steinsnar frá Vogabyggðinni við Elliðaárnar er að finna eitt besta útivistarsvæði borgarinnar og nær allt frá Elliðaárósum upp að Elliðavatni. Á svæðinu er fjöldi göngu- og hjólastíga. Í skógi vöxnum dalnum er að finna gott skjól í rjóðrum og tilvalið að fara lautarferð.

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

img
Þórey Ólafsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Þórey Ólafsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. ágú. 2020
38.600.000 kr.
42.550.000 kr.
65.9 m²
645.675 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Þórey Ólafsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur