Lýsing
Húsið er í endurbyggingu, endurbygging hefur verið unnið í samráði við Húsafriðunarnefnd, húsið er friðað á ytra birgði.
Húsið er timburhús á steyptum grunni, byggt árið 1909. Húsið skiptist í kjallara 75.4 m² hæð 75.4 m² og ris 59.2 m² samtals 210.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar; Hæð: Anddyri, eldhús, stofa, herbergi og baðherbergi Ris: opið rými. Kjallari: þvottahús og geymsla,
Húsið er klætt að utan (2021) með standandi bárujárnsklæðningu. Þak er klætt bárujárni, þak þarfnast yfirferðar og málunar. Gluggar eru timburgluggar.
Gluggar í kjallara og risi hafa verið endurnýjaðir í upprunalegt útlit, lokafrágangi er ekki lokið. Fyrirliggjandi er styrkur frá Húsafriðunarnefnd vegna gluggaskrauts á glugga og skrauts á stafna hússins. Glugga á hæð á eftir að endurnýja í upprunalegt horf.
Burðarvirki hússins hefur verið yfirfarið og endurnýjað og eða styrkt þar sem þörf var á. Búið er að drena í kringum húsið, sökkul var var steyptur að innan og utan við kjallaraveggi.
Til er kúlupanill á alla efri hæðina sem fylgir. Allt innbú utan persónulegra muna fylgir.
Fyrirliggjandi er loforð um styrk að upphæð kr. 1.200.000.- frá Húsafriðunarsjóð til verkþáttarins: Sérsmíði og ísetning glugga. Áður en verkefnið er hafið skal leita samráðs og samþykkis Minjastofnunar Íslands á tilhögun þess.
Styrkur greiðist aðeins út ef gæði vinnu eru í samræmi við kröfur Minjastofn-unar. Allur frágangur við verkefnið verður að vera til fyrirmyndar og í samræmi við lög, reglugerðir og samþykkt viðmið.
Lokaskýrslu skal skila til Minjastofnunar eigi síðar en 15. desember 2024. Vakin er sérstök athygli á að styrkur fellur niður við næstu áramót hafi hann ekki verið nýttur. Mögulegt er að uppfyllt-um ákveðnum skilyrðum að fresta styrk fram á næsta ár.
Dælubrunnur er í kjallara og dren undir kjallaragólfi til að varna að flæði inn í kjallarann þegar þannig aðstæður skapast á lóðinni. Nýr brunnur er á lóð.
Styrking var sett undir mitt húsið. Steyptur var sökkull undir húsið. Húsið er einangrað að innan. Raflagnir og vatnslagnir í húsi hafa verið endurnýjar. Eftir er að endurnýja lagnagrind, setja þarf upp nýja ofna. Nýtt gólf var steypt í kjallara og settur gólfhiti þar.
Gólf hússins hafa verið endurnýjuð. Milliveggir á hæð ásamt stiga á milli hæða hafa verið endurgerð, upprunalegur stigi er í kjallara. Hæðin er íbúðarhæf, dúkur á gólfi. Ris er tilbúið undir tréverk og einangrun, möguleiki á að skipuleggja eftir eigin vild, gert er ráð fyrir herbergi og baðherbergi. Kjallari er hrár.
Lóð er að mestu leyti ófrágengin, aftan við hús er bílastæði. Lóðin er 246,0 m² leigulóð i eigu Múlaþings.
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 216-8325.
Stærð: 01.0001 Geymslurými 75.4 m². 01.0101 Íbúð á hæð 75.4 m². 01.0201 Íbúðarherbergi í risi 59.2 m². Samtals 210.0 m².
Brunabótamat: 69.000.000 kr.
Fasteignamat: 32.650.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 36.000.000 kr.
Byggingarár: 1909.
Byggingarefni: Timbur.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala