Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hilmar Gunnlaugsson hrl
Sigurður Magnússon
Bryndís Björt Hilmarsdóttir
Vista
einbýlishús

Múlavegur 16

710 Seyðisfjörður

57.000.000 kr.

286.145 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2168654

Fasteignamat

39.600.000 kr.

Brunabótamat

85.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1975
svg
199,2 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is
 

Nokkuð mikið endurnýjað einbýlishús með þremur svefnherbergjum á efri hæð auk þriggja herbergja íbúðar með sér inngangi á neðri hæð ásamt 22fm bílskúr.
Eldhús var endurnýjað og opnað inn í stofu 2019, baðherbergi endurnýjað 2023, járn á þaki og þakrennur 2015, vatnslagnir og ofnar 2019 og allt meira og minna endurnýjað á neðri hæð og útbúin íbúð 2020.

Stofa og eldhús eru í nokkuð opnu og fallegu rými eftir vel heppnaðar breytingar árið 2019. Parket er á gólfi, bæði í stofu og eldhúsi og mjög fín innrétting í eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt. Þar er sturta og góð innrétting. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús með innréttingu og þaðan er útgengt á svalir. Inn af þvottahúsi er búr. Skipt var um parket og hurðar á efri hæð hússins sirka 2019.
Á neðri hæð er mjög fín þriggja herbergja íbúð sem útbúin var 2020. Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og þar er sturta. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parket á gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél er í íbúðinni.
Skipt hefur verið um flesta glugga. Húsið einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Neðri hæð er klædd og einangruð. Skipt hefur verið um alla rofa í rafmagnstöflu bæði uppi og niðri. Bílskúr er með þriggja fasa rafmagni og búið er að leggja fyrir hleðslustöð. Svalir hafa verið endurnýjaðar. Húsið er kynt með rafmagni og kyndingin er hagstæð.
Í heild má segja að hér sé um að ræða vel staðsett og gott hús með möguleika á að leigja út íbúð á neðri hæð.

INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone
INNI fasteignasala ehf

INNI fasteignasala ehf

Fagradalsbraut 11, 700 Egilsstaðir
phone