Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1933
144,9 m²
6 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hólabraut 17 í miðbæ Akureyrar
Falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (miðhæð) með 3ja herbergja aukaíbúð í kjallara í miðbæ Akureyrar - samtals 144,9 m²
Húsið sjálft er reisulegt og hefur verið töluvert endurnýjað síðustu ár t.d. voru allir gluggar endurnýjaðir á árunum 2015 - 2021, járn hefur verið endurnýjað á þaki, ný botnplata steypt í húsið, skólp og dren endurnýjað sem og jarðvegsskipt í kringum húsið.
Nánari lýsing.
Íbúð á hæð skiptist í gang, stofu og eldhús í einu opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Eldhús og stofa eru með ljósu harðparketi á gólfi og í eldhúsi er snyrtileg, nýleg ljós innrétting.
Svefnherbergin eru með ljósu harðparketi á gólfi og í þeim báðum eru fataskápar.
Baðherbergið var nýlega endurnýjað og þar eru flísar á gólfi og fibo trespo plötur á veggjum, nýlegur skápur undir vaska og sturta með gleri. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Íbúð í kjallara
Á árinum 2021 - 2022 var farið í miklar framkvæmdir í kjallara. Eldri botnplata var brotin upp og kjallarinn dýpkaður, ný plata steypt með gólfhita, frárennslilagnir endurnýjaðar sem og allar vatns- og raflagnir, einangrun innveggir osfrv.
Íbúðin skiptist í eldhús og stofu í einu rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Eldhús og stofa eru einu opnu rými og í eldhúsi er ný sérsmíðuð svört innrétting frá JKE með gegnheilli límtrés borðplötu.
Baðherbergi með walk-in sturtu með gleri, nýrri svartri innréttingu og hurð út á pall til vesturs (að heitum potti).
Svefnherbergin eru tvö, eitt rúmgott en hitt lítið og er ætluð sem geymsla.
Sérinngangur er í íbúðina frá verönd á vesturhlið en einnig er aðkoma að íbúðinni í gegnum sameiginlegan stigagang á norður hlið.
Í kjallara er einnig þvottahús, geymsla og tæknirými við stigagang.
Sameiginlegur inngangur og stigagangur er í húsinu norðanverðu.
Annað
- Nýlegur 15 m² geymsluskúr er á lóð sem er í sameign.
- Sér bílastæði með möl í er sunnan við húsið.
- Rafmagn hefur veri leitt út fyrir bílhleðslustöð.
- Steyptur pallur með steyptum veggjum er vestan við húsið með snjóbræðslu í.
- Heitur pottur er á pallinum, rafmagnspottur sem breytt hefur verið í hitaveitupott.
Endurbætur á síðustu árum eru m.a.
Ytra byrði
- Þak hefur verið endurnýjað að hluta - járn endurnýjað. Ártal endurbóta óþekkt.
- Skipt var um alla glugga í kjallara hússins og á miðhæð árið auk hluta glugga í risi árið 2021.
- Grafið var undir húsið og skipt um jarðveg og steypt ný plata árið 2021. Í leiðinni var lofthæð aukin í kjallara. Settar voru nýjar skólplagnir út að vegg, sett nýtt dren og dæla sem tekur við vatni úr brekkunni.
- Skipt var um jarðveg undir stæði fyrir tvo bíla sunnan við húsið.
- Steypt var verönd vestan við húsið með snjóbræðslu árið 2021. Útiljósum komið fyrir í steyptum veggjum við verönd og tengi fyrir bílhleðslu sett á suðurhlið hússins.
- Heitavatnspottur með mótorloka komið fyrir á verönd árið 2022 - rafmagnspott breytt í hitaveitu.
Miðhæð
- Skipt um alla glugga árið 2021.
- Nýlegt harðparket á gólfi í stofu, eldhúsi og öðru svefnherbergi.
- Baðherbergi uppgert árið 2023 þar sem skipt var um lagnir og sturtu, veggir klæddir og flísar lagðar á gólf.
- Nýjar sérsniðnar Plis-Sol gardínu frá Álnabæ í gluggum í svefnherbergjum og í stofu.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2015.
- Sérsniðnar gardínur í gluggum frá Álnabæ síðan 2022.
Kjallari - endurbyggður 2021 - 2022
- Steypt ný gólfplata, lagðar hitalagnir í gólf og gólfið lagt með Stucco steinefnaspartli.
- Veggir hreinsaðir, einangraðir og klæddir.
- Veggir eru að hluta til með Crustal kalkspartli með grófri áferð frá sérefni.
- Öll gólf og veggir á baði eru með StucDeco fljótandi náttúrustein með fíngerðri áferð.
- Allar raflagnir lagaðar að nýju og nýrri töflu komið fyrir. Vatnslagnir allar nýjar.
- Öll ljós eru ný og innfeld.
- Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá JKE og gegnheil límtrés borðplata úr eik - ný tæki.
- Allar innihurðar nýjar sem og innveggir.
- Stýringar fyrir pott í tækjarými í kjallara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. júl. 2017
14.900.000 kr.
20.900.000 kr.
101.8 m²
205.305 kr.
9. okt. 2008
12.940.000 kr.
13.000.000 kr.
101.8 m²
127.701 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025