Lýsing
Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngangi á besta stað í Grafarvogi. Sérmerkt bílaðstæði fylgir eigninni. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, árið 2018 var húsið málað, þak yfirfarið, skipt um rennur ásamt þvi að skipt var um alla glugga og svalahurðir á suðurhlið hússins.
Eignin er skrá skv. Þjóðskrá Íslands alls 78,3fm og þar af er geymsla 2,4fm.
Forstofa með djúpum fataskáp og parket á gólfi.
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi er á sólríkar svalir í suður.
Eldhús með nýlegri inréttingu, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, helluborð og gufugleypir, ofn í vinnuhæð og parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi nýlega endurnýjað með tengi fyrir þvottavél, gluggi með opnanlegu fagi, baðkar með sturtaðstöðu, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Sér geymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Einstaklega vel staðsett í Grafarvoginum með leik-, grunn- og framhaldsskóla í göngufæri ásamt fjölbreyttri verslun og þjónustu í Spönginni.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.