Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

953 Spánn - Costa Blanca

38.100.000 kr.

414.130 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F7003010

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
92 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR: GÆÐI, RÝMI, BIRTA* - *STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*


Vönduð 3ja herb. íbúð á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Stutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
ÍBÚÐIN VAR SELD EN KOM AFTUR Í SÖLU ÞAR SEM FJÁRMÖGNUN NÁÐIST EKKI.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 893 2495

Nánari lýsing:

Um er að ræða lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum, rúmgóðum og björtum íbúðum. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og stóru eldhúsi með fallegri innréttingu. Góðar svalir.  Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Góð sameign sameiginlegum sundlauargarði. Góð leikaðstaða fyrir börnin. 

Íbúðirnar afhendast með rafmagnstækum í eldhúsi, (ísskápur, ofn, helluborð, þvottavél, uppþvottavél, gufugleypir og örbylgjuofn).
Einnig eru íbúðirnar afhentar með aircon með bæði hita og kulda.

 Sér geymsla og stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Verð:
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 254.000 Evrum+kostn. (ISK. 38.100.000 gengi 1Evra/150 ISK)

ÍBÚÐIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is


Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.


Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, bílakjallari, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.