Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

83

svg

78  Skoðendur

svg

Skráð  3. nóv. 2024

fjölbýlishús

Hafnarbraut 4

200 Kópavogur

79.990.000 kr.

954.535 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516227

Fasteignamat

65.450.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
83,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

*SÝNUM SAMDÆGURS*
*LAUS TIL AFHENDINGAR*

136,5 fm sérafnotaflötur fylgir þessari eign.


Lind Fasteignasala kynnir nýtt og glæsilegt fjölbýlishús við Hafnarbraut 4-8 á Kársnesi í Kópavogi. Byggingin er 4 hæðir með 38 íbúðum af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Um er að ræða 2ja – 5 herbergja íbúðir. Húsið skiptist í þrjú stiga- og lyftuhús með sameiginlegum bílakjallara og fylgja bílastæði með flestum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu og stigahús. Allar Nánari upplýsingar veita Ómar Hvanndal í síma 832-3200 / omar@fastlind.is og Guðmundur Hallgrímsson í síma 898-5115 / gudmundur@fastlind.is.

Smellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins þar sem finna má yfirlit yfir íbúðir. 

// VILDARKORT LINDAR //
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

 
Íbúð 102 : Glæsileg þriggja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt sérafnotafleti. Íbúðin skiptist í forstofu, opið alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofustofu/borðstofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Á baðherbergi er innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr stofu er útgengt út á 136,5 fm sérafnotaflöt sem bæði er með viðarverönd og grasflöt. Heildarstærð er 82,7 fm. Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu merkt B36 og 4,4 fm geymsla í kjallara.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klætt með báruáli sem tryggir lágmarksviðhald.
Allar íbúðir eru með sjálfstæðri loftræstingu með varmaskipti. Upphituðu fersklofti er því blásið inn í rými íbúðanna. Kostur þess að hafa sjálfstæða loftræstingu er sá að það loftgæði haldast jöfn, rakamyndun innan íbúðar verður minni auk þess sem minni þörf er á því að opna glugga.
 
Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna nema á votrýmum sem eru flísalögð með 60x60 flísum frá Álfaborg. Allar innréttingar koma frá VOKE-3 og eru almennt í hnotulit með ljósu uppbroti. Eldhús skilast með bakaraofni og spanhelluborði frá AEG.
 
Byggingarfélagið Bestla ehf er framkvæmdaraðili að Hafnarbraut 4-8. Starfsmenn Bestlu búa að áratuga reynslu og þekkingu úr byggingariðnaði á Íslandi. Byggingarfélagið Bestla sérhæfir sig í byggingu íbúða ásamt þróunarverkefnum. Arkitekt og aðalhönnuður er Teiknistofan Tröð

Karsnes.is

Allar nánari upplýsingar veita:
Ómar Hvanndal Ólafsson löggiltur fasteignasali og lögmaður í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is
Guðmundur Hallgrímsson löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 eða gudmundur@fastlind.is


Ath. að myndir af innréttaðri íbúð eru af sýningaríbúð.
 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone