Lýsing
Miklaborg kynnir: Flott 75m² íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli í sólheimum 30. 104 Reykjavík
NÁNARI LÝSING: Komið er inn í forstofu með góðum skápum, þaðan er gengið inn í hol og úr holi er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum skápum, baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og upphengdu salerni. Eldhús er bjart með snyrtilegri innréttingu og glugga sem vísar út í garð. Stofu hefur verið breytt í tvö rúmgóð barnaherbergi, það hefur verið gert með léttum veggjum og því ætti að vera auðvelt að breyta því til baka. Þvottahús er í sameign. Samkvæmt upprunalegum teikningum er um stóra 2ja herbergja íbúð að ræða en fyrri eigandi breytti eigninni þarnnig að nú er stofan lítil og svefnherbergin þrjú.
GÓLFEFNI: Parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi og í andyri en þar eru flísar.
Allar frekar upplýsingar:
Ólafur Finnbogason Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali olafur@miklaborg.is 822-2307
Árni Gunnar Haraldsson aðstoðarmaður fasteignasala arnig@miklaborg.is 861-4161