Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfheimar 26

104 Reykjavík

59.900.000 kr.

750.627 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021094

Fasteignamat

55.800.000 kr.

Brunabótamat

33.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
79,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 21. nóvember 2024 kl. 17:00 til 18:30

Opið hús: Álfheimar 26, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 18:30.

Lýsing

** Frábær fyrstu kaup ** Laus við kaupsamning ** Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Laugardalnum við Álfheima 26 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu/borðstofu með útgengi á suðurvestur svalir, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN ***

Frábær staðsetning í fallegu og grónu hverfi við hliðina á útivistarparadísinni Laugardalnum. Leik- og grunnskóli eru handan við hornið og menntaskóli og helstu íþrótta- og tómstundaiðkun í göngufæri. Auk þess sem örstutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu allt í kring eins og Álfheimakjarna, Glæsibæ og Skeifuna. Góðar almenningssamgöngur eru í nálægð sem og fallegar göngu- og hjólaleiðir um hverfið, en örstutt er í góð útivistarsvæði og óspillta náttúruna til að njóta útiverunnar. Birt heildarstærð skv. fasteignaskrá HMS er 79,8 m2, ásamt 4,7 m2 geymslu í kjallara.

*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT ***

Nánari lýsing:
Forstofa er með flotað og lakkað gólf ásamt fatahengi.
Hol er inn af forstofu með parket á gólfi og tengir saman önnur rými íbúðar.
Eldhús með góðum borðkrók, innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi og vaskur við glugga með fallegu útsýni yfir Esjuna.
Stofa / borðstofa er inn af holi með parket á gólfi, stórum gluggum og útgengi á góðar suðurvestur svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og stórum fataskáp.  
Barnaherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, innrétting með handlaug og speglaskáp á vegg, baðkar með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Sér geymsla (4,7 m2) er inn af sameignagangi í kjallara.
Þvottahús & Þurrkherbergi er sameiginlegt í sameign í kjallara.
Hjóla- og Vagnageymsla: Í sameign í kjallara.

Húsið og lóðin:
Álfheimar 26 er fimm hæða fjöleignahús með 15 íbúðum. Húsið er hluti að fjölbýli við Álfheima 26-30 sem eru þrír matshlutar, en alls eru 38 íbúðir í heildar fjölbýlinu. Sameign er öll hin snyrtilegasta og eru þrif á sameign eru inni í húsfélagsgjaldi. Lóðin er í sameign og aðkoman að húsinu er góð, snjóbræðsla er í hellulögn fyrir framan og meðfram húsi og garður umhverfis húsið er snyrtilegur og vel hirtur. Næg Bílastæði eru bæði framan við hús og við austurenda húsins.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR FYRIR UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan TORG bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
 

img
Margrét Rós Einarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jan. 2007
14.600.000 kr.
16.700.000 kr.
79.8 m²
209.273 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Margrét Rós Einarsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ