Lýsing
Miklaborg og Jórunn lgf kynna í einkasölu. Baughús 7 Grafarvogi. Fallegt parhús tveggja hæða, þar sem húsið er tvær hæðir norðan megin en ein hæð sunnan megin með útgengi út í suður garð. Húsið skipar, neðri hæð: forstofa, hol með stiga á milli hæða sem setur mikinn svip á eignina því í stigaopinu er stór fallegur gluggi sem hleypir birtu inn i allt húsið. Tvö svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottahús. Möguleiki er á að nýta þetta rými sem sér íbúð með sérinngangi ef vill. Lagnir til staðar. Innangengt er úr hæðinni inn í bílskúr og geymslu. Efri hæð skipar: Eldhús með borðkróki þaðan er mikið útsýni. Úr eldhúsi er innangengt í borðstofu. Borðstofa og stofa einstaklega fallegt rými með mikilli lofthæð og viðarklæddum loftum. Úr stofu er útgengt út í suður garð. Einnig er á hæðinni tvö svefnherbergi og stórglæsilegt baðherbergi með loftglugga og gluggum á norður vegg til vesturs. Baðið er vel innréttað með baðkari, góðri innréttingu með spegli fyrir ofan og stórum skáp á vegg. Lagnir til staðar ef vill fyrir þvottavél inná baði 2. hæðar.
Um er að ræða einstaklega fallegt og fjölskylduvænt hús, skipulag er gott og fm nýtast vel. Í hverfi sem er orðið gróið og allt aðgengi að þjónustu gott. Einstakt útsýni úr eldhúsi og stofu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lgf í síma 8458958 eða jorunn@miklaborg.is
Húsið: er teiknað af af TT3 Agli Guðmundssyni og Þórarni Þórðarsyni árið 1990. Húsið er á 2. hæðum, þeas norðan megin við innganginn er húsið tvær hæðir, en sunnan megin við stofu er húsið á einni hæð. Húsið er allt hið snyrtilegasta og hefur fengið ágætt viðhald.
Nánari upplýsingar um eignina: Aðkoman að húsi mjög snyrtileg. Hellulagt plan við innganginn, með innkeyrslu inn í bílskúr og með stæði fyrir tvo bíla. Þegar komið er inn í húsið er opin forstofa inn í hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Í miðju holi er fallegur stigi á milli hæða með stórum glugga sem setur mikinn svip á húsið sem hleypir birtu inn í mitt húsið . Á neðri hæð eru tvö góð herbergi og baðherbergi með þvotta aðstöðu. Möguleiki væri á að breyta þessum rýmum í sér íbúð með sérinngangi (lagnir til staðar). Úr holi er innangengt inn í bílskúr en þar er geymsla inn af. Efri hæð: þegar upp er komið blasir við mikil lofthæð og einstaklega falleg rými. Eldhúsið er beint á móti stiganum. Eldhúsið er innréttað með ljósri innréttingu. Það er góður borðkrókur í eldhúsi. Innangengt er í borðstofu úr eldhúsi. Borðstofa og stofa eru einstaklega falleg rými með mikilli lofthæð og viðarklæddum loftum, með útgengi út í suður garð með palli. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og mjög fallegt baðherbergi sem er með loftglugga og fallegum glugga til vesturs.
Gólfefni er parket fyrir utan votrými en þar eru flísar.
Lóð: er frágengin, fallegur pallur til suðurs og gras flötur með kjarri við lóðarmörk. Hellulagt fyrir framan hús.
Húsfélag: Ekki er virkt húsfélag, en eigendur hafa komið sér saman um að hvor um sig sér um viðhald á sínu húsi.
Um er að ræða einstaklega fallegt og fjölskylduvænt hús, skipulag er gott og fm nýtast vel. Í hverfi sem er orðið gróið og allt aðgengi að þjónustu gott. Einstakt útsýni úr eldhúsi og stofu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lgf í síma 8458958 eða jorunn@miklaborg.is