Lýsing
Eignin Kóngsbakki 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign merkt 01-0301, birt stærð 81,9 fm., fastanúmer 204-8349 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari lýsing:
Eldhús: Falleg ljós innrétting, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi. Útgengi á svalir til suðurs.
Stofa: Opin við eldhús og parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg innrétting, handklæðaofn, sturta, vegghengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgóðir fataskápar og parket á gólfi.
Barnaherbergi : Fataskápur og parket á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Rúmgott bílaplan er við húsið ásamt leiksvæði fyrir börn.
Um er að ræða fallega íbúð á barnvænum stað í Bakkahverfinu þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum.
Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða tölvupósti: kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.