Lýsing
Glæsilegt heilsárshús við Sogsbakka í landi Ásgarðs í Grímsnes-og Grafningshreppi. Eignin er á 5.700 fm eignarlandi, kjarri vöxnu með glæsilegu útsýni. Um er að ræða sumarhús sem er skráð 93,9 fm og var byggt árið 2007. Stór sólpallur með girðingu ásamt heitum potti. Steypt plata með hitalögn. Góð aðkoma og næg bifreiðastæði. Lóðin er sérlega falleg en búið er að útbúa púttvöll á lóðinni.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísalagt gólf og fataskáp. Tvö rúmgóð svefnherbergi með dúk á gólfi. Baðherbergi með flísalagt gólf, góð hvít innrétting, sturtuklefi og upphengt salerni. Inn af baðherbergi er stórt þvottahús/geymsla. Þvottahús/geymsla með flísalagt gólf og útgengt á sólpall til vesturs þar sem heiti potturinn er staðsettur. Stór og björt stofa með mikilli lofthæð, stofan er flísalögð og er útgengt til suðurs með fallegu útsýni. Eldhús er í sama rími og stofan. Eldhús með fallegri hvítri U innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél, góðum eldunartækjum og granít borðplötu. Í anddyri er góður timburstigi sem liggur upp á risloft sem er mjög rúmgott. Risloftið er skráð 13,6 fm og er mesta lofthæð þar ca 2m.
Húsgögn geta fylgt eigninni fyrir utan persónulega muni.
Lóðin er afar falleg og stendur gróðurhús við hlið bílastæðis ásamt góðum geymsluskúr. Planið er hellulagt að mestu ásamt malarplani. Fallegur grasflötur þar sem var lagt mikinn metnað í að útbúa Púttvöll. Eins fylgir með sérstök sláttuvél sem er sérhönnuð til þess að slá grín. Ekki hefur verið sinnt grasflötinni í nokkur ár á þarf að slá hana til.
Stór timburpallur umlikur húsið þar sem sólinn nær allan daginn. Góðu heitur pottur sem sem er vestan megin við húsið og er mjög fallegt útsýni frá honum. Einnig er timburstigi niður í fallegan og skjólsælan lund.
Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu, m.a. golfvöll, veiði, sundlaug og fallegar gönguleiðir. Auk þess er stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands og þekktra staða, Skálholt, Laugarvatn, Geysir, Gullfoss og Kerið.
Selfoss er aðeins í um 16 km fjarlægð og um 70 km til Reykjavíkur, sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður