Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Pétur Kristinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1967
svg
188,4 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Aukaíbúð

Lýsing

136,4 fm. steinsteypt einbýlishús ásamt 26 fm. bílskúr og 26 fm. íbúð undir bílskúr eða samtals 188,4 fm.

Húsið hefur verið skoðað af húsasmíðameistara og byggingafræðingi og þar kemur m.a. eftirfaraandi fram: "Heilt yfir er þetta hús í góðu ásigkomulagi miðað við aldur. Gróft mat, að utan þá þarf að fara að huga að skipta um sumar rúður þar sem móða er kominn á milli og þá þéttingar og lista samhliða þar sem þess þarf. Skoða þarf hurð út á pall. Að innan þá er alveg hægt að flytja inn, svo er það bara undir hverjum og einum hvað hann vill gera, t.d. mála, skipta um gólf eða innréttingar, en húsið er vel íbúðarhæft eins og það er í dag og lítur bara vel út miðað við aldur og er á frábærum stað við sjóinn."

Húsið stendur á sjávarlóð og frá þvi er einstakt útsýni. 

Húsið skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, búr, stofu,  þrjú svefnherbergi gestasnyrtingu og baðherbergi.

Parket er á holi, stofu og tveimur herbergjum en dúkur á einu. Korkflísar eru á eldhúsi en flísar á gestasnyrtingu og baðherbergi. Á gestasnyrtingu er innbyggður sturtuklefi.

Útihurð er á þvottahúsi.

Ágætar innréttingar eru í húsinu.  

Bílskúr er upphitaður.

Aukaíbúð sem er nýlega standsett skiptist í alrými og baðherbergi. Í alrýminu er góð eldhúsinnrétting og góðar innréttingar eru á baðherberginu.  

Nýlegir sólpallar (ca 10 ára gamlir)  eru beggja vegna hússins og framan við það er upphituð hellulögð stétt.  Steypt bílastæði er við bílskúr og við suðurgafl. Þá er opið bílastæði handan götu.

Að utan er húsið klætt með steniklæðningu. (var klætt á árunum 2005 til 2007). Þá var járn á þaki endurnýjað í kringum árið 2000.

 

 

img
Pétur Kristinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Snæfellsness
Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi
Fasteignasala Snæfellsness

Fasteignasala Snæfellsness

Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi
img

Pétur Kristinsson

Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi
Fasteignasala Snæfellsness

Fasteignasala Snæfellsness

Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi

Pétur Kristinsson

Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi