Lýsing
Miklaborg kynnir til SÖLU: Arnarsmára 40, 200 Kópavogur: 73,9 fm 2ja herbergja íbúð, merkt 002, á jarðhæð ásamt 40 fm verönd í nýlegu fjölbýlishúsi, byggt 2020. Lyfta. Íbúðin er 66,9 fm og geymslan 7 fm. Parket og flísar á gólfum. Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205
Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stofa og eldhús eru samliggjandi með útgang út á stóra verönd sem er sérafnotaréttur íbúðarinnar. Í eldhúsi fylgir innbyggð uppþvottavél og ísskápur frá AEG. Í stofu er útbyggður gluggi með setbekk. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft. Baðherbergi er með innréttingu og sturtu. Innaf baðherbergi er sér þvottahús. Góð sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymsla í mjög snyrtilegri sameign. Allar innréttingar eru frá HTH og tæki í eldhúsi frá AEG. Íbúðin er laus til afhendingar 1. maí 2025 eða fyrr.
Fjölbýlishúsið Arnarsmári 36-38-40 er þrjú stigahús með samtals 40 íbúðum og lyfta í hverju stigahúsi. Allur frágangur er vandaður og er húsið einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Veggir milli íbúða eru með aukinni þykkt til að ná fram aukinni hljóðeinangrun. Nónhæð ehf. (K. S. Verktakar), byggði.