Lýsing
Miklaborg kynnir: Snyrtileg 125 fm sérhæð við Lindargötu með sérinngangi. Hæðin er 4ra herbergja með útgengi út á baklóð og skiptist í 3 svefnherbergi, stofu og eldhús í einu rými, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Flott staðsetning á rólegum stað í miðbænum. LAUS STRAX.
Bókið skoðun: Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
Sérinngangur af götu. Komið inn í forstofugang með fataskáp en inn af forstofu er þvottahús/geymsla. Sofan og eldhús er í opnu rými en skiptist þannig að í miðrými er stofan en innst er rúmgott eldhús. Eldhúsið er með spónlagðri innréttingu og opnast á skemmtilegan hátt inn í stofu sem tengir rýmin saman. Útgengt er úr eldhúsi út á baklóð. 3 svefnherbergi öll rúmgóð. Baðherbergi að hluta flísalagt, baðkar og upphengt salerni. Parket er aðalgólfefni íbúðarinnar.
Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu en upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Skemmtilega hönnuð hæð í rólegri hliðargötu í miðbænum þar sem er örstutt í iðandi mannlíf miðbæjarins. Eignin getur verið laus fljótlega.
Allar nánari upplýsingar gefur : Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is og Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteigasali í síma 695 5520 eða jon@miklaborg.is