Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Villamartin - penth

953 Spánn - Costa Blanca

43.300.000 kr.

268.944 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F6461107

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
161 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT PENTHOUSE ÍBÚÐ - FRÁBÆR STAÐSETNING* *STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*

Falleg og vel staðsett 3ja herb. íbúð á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá La Zenia Boulevard, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd.  Stutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
ÍBÚÐIN VAR SELD EN KOM TIL BAKA, ÞAR SEM KAUPANDI FÉKK EKKI FJÁRMÖGNUN.
AÐEINS EIN ÍBÚÐ Í BOÐI, ANNARS ALLT SELT.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 893 2495

Nánari lýsing:

Um er að ræða nýbyggt lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum, rúmgóðum og björtum íbúðum. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og stóru eldhúsi með fallegri innréttingu. Rúmgóðar einka þaksvalir. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sameiginlegum sundlauargarði.

Íbúðirnar afhendast með rafmagnstækum í eldhúsi.
Einnig eru íbúðirnar með aircon með bæði hita og kulda, led lýsingu, sturtuglerjum. 
Útieldhús og sturta á þakveröndinni.
Íbúðin er tilbúin til afhendingar strax.

Sér geymsla og stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð miðað við gengi 1Evra = 145ISK
3ja herbergja penthouseíbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): 299.000 Evrur (ISK. 43.300.000 ) + kostn. við kaupin.
Íbúðin er 71 fm
Svalir 19 fm
Einkaþaksvalir 71 fm.
Samtals 161 sérafnotafm.

AÐEINS EIN ÍBÚÐ EFTIR.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, bílakjallari, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.