Lýsing
Miklaborg kynnir: Vel staðsett 4ra herbergja eign á 5. hæð, miðsvæðis í höfuðborginni með mikla möguleika við Ljósheima 4, 104 Reykjavík.
Skv. skráningu HMS er eignin samtals 132,3 fm að stærð, íbúð 102,6 fm, bílskúr 24,2 fm og sér geymsla í sameign 5,5 fm. Íbúðin sjálf skiptist í hol, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofu. Lítil geymsla er innan íbúðar. Tvennar svalir.
Eign sem býður uppá mikla möguleika.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ingimundur Ingimundarsson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Kristín Avon Gunnarsdóttir aðst. f.sala í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is
Nánari lýsing :
Komið er inn í forstofuhol með innfeldu fatahengi. Flísar á gólfi. Þaðan er gengið inn í eldhús, baðherbergi, stofu og svefnherbergisgang.
Eldhús með eldri innréttingu, efri og neðri skápar, rými fyrir borðkrók. Parket á gólfi. Opið er úr eldhúsi inn á svefnherbergisgang en í dag er því lokað með stórum fataskáp á svefnherbergisganginum og því auðvelt að opna það rými.
Baðherbergi er físalagt með baðkari. Tengi fyrir þvottavél. Fordæmi eru fyrir því að stækka baðherbergið og setja upp innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er með parket á gólfi, björt með útsýni í átt að Laugardalnum. Úr stofu er gengið út á svalir sem snúa í norðvestur.
Svefnherbergisgangur er með parket á gólfi. Þaðan er gengið inn í 3 svefnherbergi. Innst á ganginum er litil geymsla.
Svefnherbergi I, með glugga og svölum sem snúa í suðaustur. Dúkur á gólfi. Góður fataskápur.
Svefnherbergi II, með glugga til norðvesturs. Parket á gólfi. Einfalt að opna inn í stofu og stækka.
Svefnherbergi III, með glugga til norðvesturs. Tilbúið til að setja gólfefni.
Bílskúr er rúmgóður með inngangshurð og rafmagnsopnara. Heitt og kalt vatn.
Í sameign er að finna þvottahús og þurrkherbergi auk hjóla og vagnageymslu.
Sér 5,5 fm geymsla í sameign fylgir eigninni.
Húsið er klætt að utan, stigagangur snyrtilegur með nýrri lyftu. Búið er að draga nýtt rafmagn í íbúðina.
Virkilega vel staðsett eign við Laugardalinn í göngufæri við helstu verslun, þjónustu og afþreyingu ásamt leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ingimundur Ingimundarsson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Kristín Avon Gunnarsdóttir aðst.m. f.sala í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is