Opið hús að Þorláksgeisla 3 (íbúð 304) milli kl. 16:00 og kl. 16:30 sunnudaginn 9. febrúar.
Lýsing
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi með merktu stæði í bílageymslu. Nýlegt dyrasímakerfi með myndavél og hleðslustöð í bílastæði sem fylgir. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og iþróttaaðstöðu sem og einnig Kópavogsdalinn og önnur útivistarsvæði.
Birt stærð eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS er 124,2 fm en þar af er geymsla á jarðhæð 2,6 fm. Einnig er geymsla innan íbúðar með glugga, innréttuð sem fataherbergi.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit - allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Geymsla innan íbúðar með glugga, fataherbergi í dag, flísar á gólfi.
Þvottahús innan íbúðar með glugga, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar vestursvalir
Hol eða opið miðrými við eldhús / sjónvarsphol eða borðstofa, parket á gólfi.
Eldhús með viðarinnréttingu, bakaraofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherberg, nýlega endurbætt með innréttingu, upphengdu salerni, sturtu og baðkari, flísalagt.
Eigninni fylgir merkt stæði í bílageymslu, geymsla á jarðhæð og hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Húsgjöld vegna eignarinnar eru nú kr. 36.303 á mánuði en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatrygging og Þþónustukaup af Rekstrarumsjón ehf. vegna reksturs húsfélags.
Framkvæmdir utanhúss:
- Múrviðgerðir á sléttum flötum og svalabrúnum 2020
- Málun á sléttum flötum og gluggum 2020
- Steining löguð 2021
- Þak yfirfarið og lagað 2022
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat