Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1947
135,5 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Laus strax
Lýsing
Grettisgata 6. Penthouse. 101 Reykjavík. Einstaklega sjarmerandi 134.2 fm penthouse íbúð með mikilli lofthæð og stórkostlegu útsýni á 4. og efstu hæð í einu af glæsilegasta húsinu á Skólavörðuholtinu.
Húsið er í vesturenda Grettisgötunnar og er til dæmis ekki nema tveggja mínútu gangur bæði í norður niður á Laugaveginn í gegnum portið hjá Verzlanahöllinni og í suður á miðjan Skólavörðustíginn.
Þar sem þessi einstaka penthouseíbúð er á efstu hæðinni í fallega húsinu að Grettisgötu 6 og er þar að auki inndreginn götumegin og með stórum svölum eftir allri hlið íbúðarinnar þeim megin, þá er hún langt fyrir ofan ys og þys umhverfisins, enda stendur þessi hæð ofar en flest húsin í nágrenninu.
Til að fá nánari upplýsingar og panta einkaskoðun er best að senda tölvupóst á Vilhjálm Bjarnason á ekkifjarfestir@gmail.com en einnig má senda sms í síma +354 8228183.
Í þessum link hér fyrir neðan er íbúðin í þættinum HouseHunters þar sem þrjár íbúðir í Reykjavík keppa um hver þeirra hentar aðilarnir í þættinum best að búa.
Ætla ég ekkert að segja meira um þessa þáttaröð en íbúðin kemur vel út úr samkeppninni.
Grettisgata 6. Penthouse apartment downtown Reykjavík, Iceland. Email: ekkifjarfestir@gmail.com
Húsið er byggt 1947 og var eitt af fyrstu steinsteyptu og Marmarasallasteinuðu fjögurra hæða húsunum á Íslandi sem byggt var í evrópskum stíl.
Arkitekt hússins var Halldór H. Jónsson arkitekt en eftir hann standa mörg og merk mannvirki eins og Háteigskirkja, Bogahúsið við Höfðabakka, Hótel Saga, mörg kaupfélagshús á landsbyggðinni og fjölda annarra fallegra bygginga.
Grettisgata 6 hefur sterkan svip og er með innbyggðan, mjög rúmgóðan, bogadreginn og glæsilegan stigagang sem myndar að utan einstakan boga frá húsinu götumegin með mjög fallegum og nettum sameiginlegum norðursvölum á neðri hæðum hússins auk um 28 fm svala framan við þessa íbúð sem eru eftir allri norðurhliðinni og gefa húsinu glæsilegt útlit og yfirbragð.
Stórfenglegt norðurútsýni er, allt frá Hörpunni, út á sjóinn og yfir Sundin, að Esjunni upp í Mosfellsdalina og víðar frá öllum gluggum íbúðarinnar götumegin og frá svölunum.
Norðursvalirnar eru með upprunalegu steyptu píralahandriði og hafa eigendur þessarar penthouseíbúðar oft notað þessar stóru svalir sem útisetrými og grillaðstöðu á sumrin.
Frábært suðurútsýni er einnig frá öllum stóru gluggunum á suðurhliðinni og góðum sér suðursvölunum út frá suð-vestur endaherberginu yfir garða og þök nærliggjandi húsa á Skólavörðuholtinu og að Hallgrímskirkju í öllu sínu veldi
Aðkoma að húsinu: Falleg aðkoma er að húsinu götumegin beint á móti Verslanahöllinni og er þar gengið frá gangstéttinni upp þrjár marmaratröppur upp á marmarapall sem er í skjóli undir svölum annarrar hæðar.
Af marmarapallinum er aðalinngangur hússins um útidyrahurðina sem er við hlið bogadregna stigahússins.
Þar er fyrst komið inn í mjög rúmgóða sameiginlega teppalagða forstofu sem liggur að bogadregna og fallega stigaganginum.
Einnig er gengið niður í kjallara hússins frá forstofunni en þar er sameiginlegt og stórt en lágloftað þvottahús og sambærilega hjólageymslu ásamt mjög rúmgóðri sérgeymslu íbúðarinnar sem er með hillum.
Stigar og stigapallarnir eru teppalagðir, óvenjulega rúmgóðir og bjartir og eru þeir fallega málaðir. Hafa þeir greinilega verið viðhaldið og málaðir samkvæmt upprunalega fallega handverkinu ásamt því að steyptu stigahandriðin eru með glæsilega unnum tréverki efst sem skapar flæðandi bogalínu upp stigana og stigapallana með mjúku og fáguðu handbragði.
Skipulag íbúðarinnar:
Forstofa og gangur: Flísalögð opin forstofa, fataskápur með gamaldags harmonikkuhurð, gangurinn er rúmgóður og tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Baðherbergi: Flísalagt með stórum glugga, gamaldags innrétting með skápum og hillum og fallegum bogadregnum vask, gamaldags sturtuklefi með glerhurð.
Svefnherbergi 1: Rúmgott svefnherbergi sem eru með tveimur góðum gluggum með flottu útsýni í norður, innbyggður skápur og parket.
Svefnherbergi 2: Mjög rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum skápum og parketi, góður gluggi og svalahurð með útgangi á góðar suðursvalir með flottu útsýni yfir fallegu húsin í nágrenninu og upp að Hallgrímskirkju.
Borðstofa / svefnherbergi 3: Parketlagt og mjög rúmgott rými með stórum glugga og rennihurð sem skilur það frá stofunni og hefur rýmið verið nýtt sem þriðja svefnherbergið.
Eldhús: Sjarmerandi og mjög rúmgott eldhús með tveimur stórum gluggum með frábæru norðurútsýni, rúmgóð hvít eldri innrétting, Electrolux spanhelluborð og bakaraofn þar undir. Eldri uppþvottavél fylgir en hún hefur virkað mjög vel hingað til.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi og mjög stórum glugga með norðurútsýni og að auki er áðurnefnd rennihurð yfir í borðstofuna / herbergið við hliðina.
Sameign og sérgeymsla íbúðarinnar: Í kjallara hússins er stórt þvottahús og þurrkherbergi með sértengjum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Einnig er rúmgóð 24.2 fm sérgeymsla íbúðarinnar í kjallaranum. Frekar lágt er til lofts í kjallaranum.
Viðhald hússins: Húsið virðist hafa fengið nokkuð gott viðhald í gegnum tíðina samkvæmt upplýsingum frá eigendum og húsfélaginu.
Húsið er nýlega yfirfarið að utan og gert var við það sem þurfti og ytra byrðið var þá endursteinað með marmarasalla í upprunalega fallega rauðbrúna litnum.
Gluggar, gler og svalahurðir á suðurhlið hússins voru allir endurnýjaðir á sama tíma og húsið var viðgert og endursteinað.
Það er kominn tími á að huga að því að setja nýtt gler og skoða gluggana norðan megin í húsinu en auðvelt aðgengi er til þess fyrir þessa íbúð þar sem norrðursvalirnar eru eftir allri þeirri hlið.
Minni samt á að það þarf að ræða allar sameiginlegar viðgerðir bæði innan- og utanhúss á formlegum húsfélagsfundum til að fá löglegt samþykki fyrir þeim ÁÐUR en farið er í framkvæmdir.
Stóru sameiginlegu svalirnar norðanmegin ásamt steyptu þakrennunni út frá þeim voru pússaðar og lagað það sem þurfti og svo málaðar með vönduðu svalaefni sumarið 2024.
Nú í sumar / haust 2025 stendur til að yfirfara og laga á sambærilegan hátt steyptu þakrennuna norðanmegin á húsinu sem er yfir þessari hæð út frá þaki hússins samkvæmt upplýsingum frá eiganda og forsvarsmanni húsfélagsins.
Möguleikar á endurskipulagningu: Íbúðin býður upp á spennandi möguleika til breytinga.
Flestir innveggir eru svokallaðir léttir veggir, ekki steyptir, sem gerir auðveldara að breyta rýmum íbúðarinnar. Sjá teikningu af íbúðinni sem eru með myndum af eigninni á fasteignavefjunum.
Til dæmis mætti færa eldhúsið í stofuna og taka niður langa millivegginn á milli stofunnar og gangsins og skapa með því stórt, bjart og opið alrými með stórbrotnu útsýni. Núverandi eldhúsrými mætti þá nota sem auka svefnherbergi eða vinnuaðstöðu. Slík breyting myndi auka nýtingu rýmisins og gefa íbúðinni nútíma glæsibrag ásamt því að geta mögulega aukið verðmæti eignarinnar.
Í stuttu máli má segja að þetta er einstök eign sem býður upp á stórkostlega möguleika!
Grettisgata 6 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 200-6191, íbúð 0401. Birt heildarstærð séreignarhluta eignarinnar er 134.2 fm.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. mar. 2007
25.410.000 kr.
31.000.000 kr.
134.2 m²
230.999 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025