Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Mávahraun 2

220 Hafnarfjörður

139.900.000 kr.

614.135 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2077769

Fasteignamat

137.450.000 kr.

Brunabótamat

104.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1966
svg
227,8 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallegt,  bjart viðhaldslétt einbýli á einni hæð auk þess er auka íbúð með sérinngangi þar sem áður var bílskúr,  samtals stærð eignar 227,8 fermetrar þar af íbúð í bílskúr ca 70 fermetrar. Næg bílstæði er við húsið.

Stutt m.a. í skóla, verslanir, íþróttasvæði ofl. Góð staðsetning í vinsælu hverfi.
 Tveir inngangar eru í húsið, annars vegar frá Mávahrauni og hinsvegar frá Álfaskeiði . Byggt hefur verið tvisvar við húsið og það stækkað frá upphaflegri teikningu. Stórt bílaplan, hellulagt með hita er Álfaskeiðs megin. Í garðinum er stór verönd með garðsskýli, rafmagnspotti og útigeymslu.

Húsið er kynnt með ofnum, lofthita og gólfhita. Í kjallara sem er með sérinngang, er rúmgóð geymsla og líka innangengt (lúga) frá geymslu í forstofu. Geymslan er ekki í fermetra tölu eignar.

Húsið skiptist þannig: Álfaskeiðsmegin, rúmgóð  forstofa með náttúrusteini á gólfum, innangengt í rúmgott þvottaherbergi með innréttingum og glugga. Frá forstofu er geymsla með og lúga niður í geymslu/kjallarann. Forstofan og þvottaherbergið er nýrri viðbyggingu. (hiti í gólfum þar) Frá forstofu er síðan gengið inní eldhúsið sem er rúmgott með nýlegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu ásamt uppþvottavél, innbyggður frystir, spanhelluborð með viftuháf yfir, ofn og örbylgjuofni í vinnuhæð, innangengt frá eldhúsi í eldri borðstofu og stofuna, hol, forstofa sem snýr út að Mávahrauni, þar fyrir innan er falleg gestasnyrting með upphangandi salerni, flísar í hólf og gólf. Inn af forstofu er fimmta svefnherbergið með fataskáp með rennihurðum.

Svefnálma: þar er hjónaherbergi með fataskáp á heilum vegg , auk þriggja annara barnaherbergja með parketi á gólfi og fataskápum í tveimur þeirra. Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, upphangandi salerni, opnanlegur glugga Á svefngangi er síðan útg. út í garðinn. 

Við eldri stofuna og borðstofuna var síðan byggt við húsið fyrir ca 22 árum síðan, þ.e. rúmgóð stofa /sólskáli með útg. út í suður garðinn, hátt til lofts með stórum föstum birtu glugga í lofti. Náttúrusteinn á gólfi. (hiti í gólfum í viðbyggingu að hluta ) Sólstofan er með stórri rennihurð út í garð.

Húsið hefur töluvert verið endurnýjað á sl. árum, m.a. klætt að utan með vandaðri klæðningu og einangrað líka. Allt nýlegt í rafmagnstöflu. Þriggja fasa rafmagn í geymslu Í kjallara er gott lagnarými/geymsla ca 20 m2 (ekki í fm tölu eignar)

Nánari lýsing á íbúð í bílskúr. Fyrir framan íbúð er verönd með skjólveggjum . 
Forstofan er flísalögð, eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu , keramik helluborð og vifta, parket á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi með dúkflísum á gólfi , fallegri innréttingu og upphengdu salerni, sturtuklefi. Stofan er flísalögð með góðri lofthæð og kamínu.  Geymsla með parketi á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 

Helstu framkvæmdir frá 2017-2024

* timburverönd með smá grasi fyrir framan.
* ca 14,5 m2 geymsluskúr með sturtu sem er með séraðgengi frá heitapottinum. Það er ekki búið að tengja sturtuna við hitann inn í húsinu ,en rörin fyrir sturtuhausana eru ótengd.
* Rafmagnspottur frá Bauhaus síðan 2017 sem er afgirtur.
* Skipt var um skolplagnir fyrir 3 árum frá húsinu og út í götu. Nýr brunnur settur í leiðinni.
* 2017 var sett ídráttarlögn sem kemur upp á hliðinni á húsinu undir klæðningunni til að geta sett upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Það er ekki kominn upp greinatafla fyrir lagnirnar.
* 2023 var varðinum Álfaskeiðmegin jarðvegsskipt og búin til bílastæði þar.
* 2022 var skipt  um inntakið fyrir kaldavatnið 
* 2021 var eldhúsið endurnýjað


 Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. feb. 2017
57.800.000 kr.
64.000.000 kr.
227.8 m²
280.948 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone