Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1995
svg
119,1 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Funalind 1, fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á annarri hæð, ásamt bílskúr. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Íbúðin er vel staðsett í Lindahverfinu og matvöruverslanir í göngufæri ásamt skóla, leikskóla og annarri þjónustu.  

Íbúðin sjálf er skráð 91,0 m2 hjá HMS og bílskúrinn er 28,1 m2.

Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.


Nánari lýsing eignar:
Komið er inn á parketlagða forstofu og hol með góðum fataskáp.  
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi, rúmgóðar og bjartar. Úr stofu er útgengt út á svalir sem eru með svalalokun.  
Eldhúsið er rúmgott með snyrtiegri innréttingu, flísar á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf. 
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Barnaherbergið er rúmgott og parket á gólfi. 
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi. 
Í kjallara er sér geymsla fyrir íbúðina, hjóla- og vagnageymslu. 
Bílskúrinn er með sjálfvirkri hurðaopnun og er snyrtilegur og rúmgóður.   

Þessi íbúð er mjög snyrtileg og rúmgóð á góðum stað í Lindahverfinu sem er eftirsótt staðsetning á höfuðborgarsvæðinu. Smáralind er stutt frá og stutt er í aðra þjónustu, skóla og leikskóla. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni löggiltum fasteignasala í síma 8966020 eða í tölvupóstfanginu hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík