Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Vista
svg

808

svg

591  Skoðendur

svg

Skráð  22. feb. 2025

fjölbýlishús

Álfheimar 40

104 Reykjavík

85.900.000 kr.

701.797 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021039

Fasteignamat

74.850.000 kr.

Brunabótamat

49.550.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
122,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 27. febrúar 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álfheimar 40, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 27. febrúar 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Nýtt á skrá! Opið hús - Álfheimar 40 Reykjavík - fimmtudaginn 27. febrúar klukkan 17:00 - 17:30

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 122,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með svölum til suðurs við Álfheima 40 í Reykjavík. Inn í heildar fermetrum er 12 fermetra herbergi í kjallara sem hefur verið leigt út (sameiginlegt salerni í kjallara) og 4,7 fermetra sér geymsla í einnig er staðsett í kjallara. Íbúðin er björt með nýlegu eldhúsi (endurnýjað 2022) sem var fært inn í alrými íbúðar. Alrými er stórt með góðum glugugm til suðurs sem nýtur mikillar birtu. Útgengi á suðursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins. Þá var baðherbergi sömuleiðis endurnýjað árið 2022 á fallegan máta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara innan íbúðar.

Um er að ræða virkilega sjarmerandi fjölbýli, byggt árið 1958, sem hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. var húsið múrviðgert og málað árið 2023 og komið fyrir hitavír í þakrennum sama ár. Árið 2024 var skipt um allar lofttúður á þaki. Þakið var endurnýjað árið 2017 og skipt um allt járn. Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2015 og drenlagnir í kringum alla blokkina árið 2008. Öll sameign er mjög snyrtileg sem og lóð og stétt við húsið. Snjóbræðsla í stétt fyrir framan hús. Endurnýjuð rafmagnstafla í sameign. Auk þess er búið að koma fyrir rafhleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum við lóð.

Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Álfheima í Reykjavík. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing:
Forstofa: 
Lakkað viðargólf og skápar.
Stofa: Er stór með lökkuðu viðargólfi og góðum gluggum til suðurs. Stofa og eldhús mynda eitt stórt alrými þar sem mjög gott pláss er fyrir setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Borðstofa: Er staðsett við eldhús íbúðar. Lakkað viðgólf og gluggar til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2022 á fallegan máta. Stór eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Innb. kæliskápur með frysti, innb. uppþvottavél, bakaraofn, combi ofn, AEG spansuðu helluborð og háfur. 
Hol: Með lökkuðu viðargólfi og skápum fyrir þvottavél/þurrkara ásamt skáp fyrir lín/óhreina tau.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2022. Flísar á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með glerþili, innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan, upphengt salerni og útloftun. 
Hjónaherbergi: Með lökkuðu gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með lökkuðu gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með lökkuðu gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Herbergi í kjallara: Er 12 fermetrar og hefur verið í leigu undanfarið. Skápar og gluggi til suðurs inn í bakgarð hússins.
Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 4,7 fermetrar.
Sameiginlegt salerni: Er staðsett í kjallara. Salerni og vaskur.
Sameiginlegt þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara (einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara innan íbúðar). Snyrtilegt með máluðu gólfi. Sér tenglar fyrir hverja íbúð, gluggi til norðurs og þvottasnúrur.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi. Hjólasnagar/hjólagrindur og gluggi til norðurs.
Geymsluskápur: Er staðsettur fyrir íbúð á stigapalli fyrir utan inngang íbúðar.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672

img
Heimir Hallgrímsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. jún. 2022
54.600.000 kr.
72.600.000 kr.
122.4 m²
593.137 kr.
31. júl. 2019
46.600.000 kr.
44.500.000 kr.
122.4 m²
363.562 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Heimir Hallgrímsson

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur