Lýsing
Fallegt og vel skipulagt fimm herbergja 150,5 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr að Fornósi 8 á Sauðárkróki. Stór og góð afgirt lóð er umhverfis húsið sem er með steni klæðningu. Gott fjölskylduhús. Samkvæmt Þjóðskrá er íbúð 113,9 m² og bílskúr 36,6 m² samtals 150,5 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahúsi og bílskúr.
Sækja söluyfirlit strax
Harðparket er á gólfum nema í forstofu, eldhúsi, baði og þvottahúsi sem eru með flísum á gólfi. Gólfhiti er í öllu húsinu. Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp. Gengið inn á gang, þar eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Stofa og borðstofa er í stóru og björtu rými og sunnan megin er gott eldhús með borðkrók, þar innaf er mjög rúmgott þvottahús með útgengi á stóra baklóð mót suðri, hún er að hluta til hellulögð og með grasi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, góðri viðar baðinnréttingu, hornbaðkari með nuddi og sturtu yfir, handklæðaofni. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp. Barnaherbergin eru þrjú, öll nokkuð rúmgóð. Í eldhúsi er viðarinnrétting á tveimur hliðum með góðu skápa- og skúffurými, bakarofni í vinnuhæð, keramik helluborði með háf yfir úr burstuðu stáli og innbyggð uppþvottavél. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og í eldhúsinu er góður borðkrókur. Þvottahús er innaf eldhúsi, rúmgott með góðum þvottahússinnréttingum, tengi fyrir þvottavél í vinnuhæð, góðu borðplássi og handklæðaofni. Innaf þvottahúsi er geymsla og útgengi á afgirta baklóð. Bílskúr sendur sér á lóð, hann er með rafmagni og hita og geymslu innaf. Á lóð er stór sandkassi með loki og hár gróðurkassi.
Um er að ræða fallegt og mjög vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr að Fornósi 8 á Sauðárkróki.
Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat