Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
svg

305

svg

268  Skoðendur

svg

Skráð  3. mar. 2025

raðhús

Stapavellir 21

260 Reykjanesbær

76.900.000 kr.

623.682 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2295996

Fasteignamat

68.500.000 kr.

Brunabótamat

60.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2007
svg
123,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Rúmgott og bjart 3ja herbergja raðhús á einni hæð með aukinni lofthæð og innangengt í bílskúr við Stapavelli 21 í Njarðvík. Sólpallur á bak við húsið með steyptum skjólveggjum. Innangengt í bílskúr og hellulagt bílaplan með snjóbræðslukerfi. Sérþvottahús. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 123,3fm. og þar af er innbyggður bílskúr 23,6fm. 

Nánari lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Eldhús er opið við stofu og borðstofu og mynda eitt rúmgott alrými með aukinni lofthæð og flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, bakaraofn í vinnuhæð og opnanlegur gluggi.
Stofa og borðstofa rúmgóð. Útgengt er út á verönd með steyptum skjólveggjum. útgengt á verönd með steyptum skjólveggjum.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. 
Herbergi með rennihurð og flísum á gólfi. 
Baðherbergi rúmgott með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. Útgengt er út úr baðherberginu út í garð.  
Þvottahús með góðri innréttingu, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur og gott borðpláss. Flísar á gólfi. 
Geymsla með flísum á gólfi.
Bílskúr er skráður 23,6fm. með bílskúrshurðaropnara, einnig er hliðarhurð sem hægt er að ganga um, gluggi, skolvaskur og flísar á gólfi. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslukerfi. 

Lóðin er öll frágengin. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík