Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
fjölbýlishús

LYNGHEIÐI 25

810 Hveragerði

105.900.000 kr.

543.356 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2210761

Fasteignamat

93.700.000 kr.

Brunabótamat

111.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
194,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir LYNGHEIÐI 25 Hveragerði í einkasölu. Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur í grónu hverfi innst í botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu, gönguleiðir og Hamarinn. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
Húsið er steypt, byggt árið 1988. Eignin skiptist í íbúð 154.3 m² og bílskúr 40.6 m² að stærð samtals 194.9 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús og borðstofa/skáli, stofa, fjögur herbergi, baðherbergi, gangur, gestasalerni, þvottahús, tvöfaldur bílskúr og sólstofa. 

Nánari lýsing:
Anddyri; fatahengi, innangengt er úr anddyri í svefnherbergi og gestasnyrtingu. 
Gestasnyrting, upphengt salerni og handlaug, flísar á gólfi. 
Stofa, parket á gólfi, Arin er í stofu (virkur), frá stofu er útgengt í sólskála. 
Eldhús með U-laga innréttingu og eyju, flísar á milli skápa.  AEG uppþvottavél (fylgir), ofn og helluborð, vifta.Tvöfaldur ísskápur fylgir með. Flísar á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur eru í stærra herberginu, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi, harðviðarparket á gólfi, sexfaldur fataskápur. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, rúmgóð innrétting með vask, sturta og baðkar, handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús með innréttingu, pláss fyrir tvær vélar í vinnuhæð, stálvaskur í innréttingu. Dúkur á gólfi.
Bílskúr tvöfaldur, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, einnig er inngönguhurð að aftanverðu. Tvær bílskúrshurðar, önnur með rafmagnsopnara.
Inn af bílskúr er vinnuherbergi/skrifstofa, parket á gólfi. 
Sólskáli, er framan við stofu í suður og vestur átt, flísar á gólfi.
Veggfastar hillur í alrými og barnaherbergi fylgja. Öll loftljós fylgja ásamt rúllugardínum. Hillur í bílskúr fylgja. Tvöfaldur ísskápur, keyptur 2024, fylgir. Sófi í stofu fylgir.

Lyngheiði 25 er steinsteypt hús á einni hæð byggt árið 1988. Hellulagt er fyrir framan húsið, meðfram og fyrir aftan bílskúrinn, hellulagt bílaplan pláss fyrir þrjár bifreiðar.
Lóðin er fullfrágengin, steyptur pottur er fyrir framan hús, kartöflugarður fyrir aftan hús. Steyptur kantur er kringum alla lóðina. Fánastöng á lóð fylgir ekki. Lóðin er 748,8 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ.
 
Eftirfarandi hefur verið endurnýjað á árunum 2022-2024:
Haust 2023 var þakið endurnýjað í heild sinni, þak var sett á lektur, skipt var um dúk og sett nýtt stallað járn frá Áltak ásamt því að þakkantar, þakgluggar og reykháfur var klætt.
Einnig var styrktarbiti settur undir skyggni framan við húsið. Desember 2024 var öðru gluggastykkinu í hjónaherberginu skipt út. 
Skjólveggir voru málaðir 2024. Rafmagnstöflur í anddyri og í bílskúr voru endurnýjaðar í heild sinni desember 2024.
Öll innfeld loftljós (LED) í alrými, hjónaherbergi og öðru svefnherberginu var skipt út desember 2024 ásamt öllum ljósum í bílskúr.  
Gestasnyrting var tekin í gegn sumarið 2024, nýtt upphengt salerni, vaskaskápur og flísalagt. Aukaherbergi/skrifstofa var parketlagt og málað 2022. 

Skráning eignarinnar hjá HMS:
Fastanúmer 221-0761.

Stærð: 01.0101 Íbúð 154.3 m². 01.0102 Bílskúr 40.6 m². Samtals 194.9 m²
Brunabótamat: 111.450.000 kr.
Fasteignamat: 93.700.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 103.900.000 kr. 
Byggingarár: 1988. 
Byggingarefni: Steypa.  


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. apr. 2022
61.350.000 kr.
77.000.000 kr.
194.9 m²
395.074 kr.
8. jan. 2007
27.270.000 kr.
33.250.000 kr.
194.9 m²
170.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði