












Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsilegar íbúðir með þjónustusamningi við Heilsustofnun NLFÍ. Íbúðirnar eru einstaklega vel innréttaðar og fylgir stæði í bílgeymslu öllum 18 íbúðum í þessum fyrsta hluta verksins. Lyfta er í húsunum. Þjónustusamningur er á milli Heilsustofnunar NLFÍ og Lindarbrúnar, sem er gjaldfrjáls árið 2025. Í honum felst m.a: Aðgangur að baðhúsi Heilsustofnunnar, afsláttur á mat, hirðing lóðar, næturvarsla á svæðinu, aðgangur að tækjasal, bókasafni, innra starfi og fræðslu og skipulagðar gönguferðir. Ýmislegt annað er innifalið sem lesa má betur um í þjónustusamningi sem liggur fyrir.
Nánari upplýsingar: https://lindarbrun.is/?da_image=lindarbrun-2
Nánari lýsing: Íbúð 106 er 117,5 fm ásamt 14,8 fm geymslu, samtals 132,3 fm. Þegar inn er komið tekur við forstofa. Sér þvottahús. Gestasalerni. Alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Vandaðar innréttingar, sjá nánari upplýsingar í skilalýsingu sem liggur fyrir. Tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi og fataherbergi innaf hjónaherbergi. Sér geymsla í kjallara og stæði í bílageymslu.
Forstofa: Flísalögð með fataskápum.
Þvottahús: Góð innrétting og vaskur. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Alrými: Eldhús og stofa eru saman í opnu rými.
Eldhús: Edhúsinnrétting er úr spónlagðri hnotu, sérsmíðaðuð, framleidd og uppsett af Voké III.
Efri skápar eru hvítir og neðri dökk hnota. Borðplata er quartzsteinn,Noble Ivory White. Vaskur og blöndunartæki eru svört sem og höldur á neðri skápum.
Innbyggður ísskápur með frysti, bakarofn, uppþvottavél og vifta. Stór eldhúseyja með helluborði.
Frá stofu er útgengt á steypta verönd.
Gestasalerni: þar er upphengt wc, handklæðaofn og innrétting með handlaug.
Svefnherbergi: með sérsmíðuðum fataskápum.
Hjónaherbergi: er stórt og rúmgott. Inn af hjónaherbergi er 3,7m² fataherbergi og baðherbergi.
Fataherbergi: er inn af hjónaherbergi. Þar eru sérsmíðaðir fataskápar sem ná upp í loft.
Baðherbergi: er inn af hjónaherbergi. Þar er vönduð innrétting með skápum og handlaug, upphengt wc, handklæðaofn og "walk-in" sturta.
Nánari upplýsingar veita:
Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205
Viðar lgf., vidar@miklaborg.is / 694-1401
Ólafur lgf., olafur@miklaborg.is / 822-2307