Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Helgi Bjartur Þorvarðarson
Vista
svg

272

svg

232  Skoðendur

svg

Skráð  10. mar. 2025

einbýlishús

Grænigarður 7

230 Reykjanesbær

105.000.000 kr.

593.556 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2087888

Fasteignamat

84.800.000 kr.

Brunabótamat

84.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
176,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

ALLT fasteignasala kynnir einbýlishús við Grænagarð 7, birt stærð 176.9 fm. Fallegt og vel skipulagt 4 svefnherbegja einbýlishús. Vel staðsett innarlega í botnlanga í hinu vinsæla Heiðarskólahverfi.

Afhending við kaupsamning!


Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð síðustu ár, baðherbergi full endurnýjað, eldhús endurnýjað, alrými flísalagt með gólfhita. Búið er að útbúa rúmgott svefnherbergi í bílskúr eignar. Járn á þaki hefur verið endurnýjað og þakkantur klæddur með áli.

Eignin skiptist í dag í forstofu, gestasalerni, rúmgóða stofu og borðstofu, barnaherbergi, eldhús sem hefur verið endurnýjað, þvottahús, bílskúrsherbergi. Fjölskyldurými / sjónvarpsrými. Á herbergja gangi eru tvö svefnherbergi (áður 3) og baðherbergi. Stór og fallegur garður sem nýtur sólar frá morgni fram á kvöld. Heitur pottur með stýringu. Rúmgott hellulagt bílaplan og garður gróinn. Vel skipulögð eign á vinsælum stað.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa
með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Gestasalerni með handlaug og salerni.
Fjölskyldu / sjónvarpsrými flísalagt, stórir og margir glugga tryggja mikla birtu í rýminu.
Eldhús er bjart með nýlegri fallegri innréttingu, góðum tækjum og veglegu vinnuplássi. Gólf flísalagt.
Stofa og borðstofa rúmgóð með parketi.
Barnaherbergi við stofu parketlagt.
Þvottahús með góðri innréttingu fyrir tæki í vinnuhæð og gott skápapláss. Útgengt er úr þvottahúsi. 
Bílskúr hefur verið breytt í íverurými og geymslu. Gluggar settir í staðinn fyrir bílskúrshurð, en auðvelt að breyta til baka.
Tvö svefnherbergi á gangi með parket á gólfi. Áður voru 3 herbergi.
Baðherbergi að fullu endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf ásamt walk-in sturtu, vegghengdu salerni og góðri hvítri innréttingu.

Lóð eignar er fullgerð með sólpalli í suður ásamt heitum potti. Gróin lóð og rúmgott hellulagt bílastæði. Við lóðarmörk liggur góður graslundur sem börn hafa notast við leik.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Elín Frímansdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is
Haukur Andreasson lögfræðingur / löggiltur fasteignasali í 866-9954, tölvupóstur haukur@allt.is 

 

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

img
Páll Þorbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone
img

Páll Þorbjörnsson

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær - Mosfellsbær – Grindavík

phone

Páll Þorbjörnsson