Lýsing
Pantið einkaskoðun hjá Jóni Rafn fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Kíktu í heimsókn hér https://eirhofdi.is/syningaribudir/
Miklaborg kynnir: Íbúð 204 er 2ja herbergja vel skipulögð íbúð á 2. hæð með svölum. Hlýlegt heimili með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum, flísalögðu anddyri og baðherbergi. Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi. Stílhrein hönnun og vönduð gæði. Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. Litaþema íbúðar er Snjór. Íbúðin afhendist fullbúin án megin gólfefna. https://eirhofdi.is/syningaribudir/
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.
Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
(Myndir á vefnum eru dæmi um útlit eignarinnar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign.)
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: er með með fataskáp sem nær upp í loft.
Svefnherbergi: Með fataskáp er nær upp í loft. Rúmlega 12 fm að stærð.
Eldhús: Opið með eldunareyju og tengist við stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Eldhús skilast með veggofni og span-helluborði. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: Björt og með útgengi á suður svalir.
Vinnurými: Afstúkað á bak við eldhús og nýtist vel sem skrifstofa t.d.
Baðherbergi: Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Sturta með Unidrain línurist og sturtugleri. Vegghengd salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki ásamt handlaug sem situr ofan á borðplötu frá GROHE. Skápainnrétting fyrir þvottavél.
Geymsla: er 6,2 fm
Nánari upplýsingar veita
Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Gabriel Máni Hallsson í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Steinn Andri Viðarsson í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is