Lýsing
** Bókið skoðun hjá Lindu í s. 8687048 **
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með eldhúseyju, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi. Opið rými milli eldhúss og stofu.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á flísalagðar suður svalir.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni, flísum í hólf og gólf.
Þvottahús er með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísar á gólfi.
Geymsla er 13,8 fm í kjallaranum ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Stæði í bílageymslu fylgir, hleðslustæði til staðar.
Falleg eign á góðum stað í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli og leikskóli í göngufæri. Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring.
Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit strax
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.