Opið hús: Laugarnesvegur 61, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 22. mars 2025 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Eignin Laugarnesvegur 61 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-7226, birt stærð 193.4 fm. þar af 19,9 fm bílskúr.
Um er að ræða fjögurra svefnherbergja sjarmerandi eign, aðalhæð og jarðhærð í tvíbýlishúsi á skemmtilegum stað í Laugarneshverfinu, sem fengið hefur gott viðhald í gegnum árin.
Nánari lýsing.
Aðalhæð
Gengið er inn á aðalhæð um sameiginlegan inngang með íbúð efstu hæðar.
Komið er inn í hol með góðum skápum, á hægri hönd er rúmgott herbergi með skápum. Úr holi er stigi niður á jarðhæð íbúðarinnar.
Baðherbergi er rúmgott með frístandandi baðkari ásamt walk in sturtu.
Hvít eldhúsinnrétting með viðar borðplötu og góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð. Veggurinn yfir innréttingu klæddur með múrsteinsáferð sem setur svip á eldhúsið.
Borðstofa og stofa í sameiginlegu rými með parket á gólfi.
Jarðhæð
Gengið er inn á jarðhæð með um séringang, einnig er stigi frá aðalhæð sem kemur niður á hol jarðhæðar sem er parketlagt.
Úr holinu er á vinstri hönd þvottahús ásamt geymslu. Gestasnyrting er á jarðhærð.
Á hægri hönd er rúmgott herbergi með parket á gólfi og skápum.
Innaf holi er sjónvarpsstofa og inn af stofunni er annarsvegar rúmgott barnaherbergi með parkert á gólfi og skápum og annars vegar hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Nánari upplýsingar veitir Steinar Ingi Þorsteinsson , í síma 847-3108, tölvupóstur steinar@heimili.is.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.