Lýsing
Tvö stór svefnherbergi, stofa og borðstofa, rúmgott hol, eldhús, þvottahús/geymsla inn af eldhúsi, baðherbergi, sérgeymsla á jarðhæð.
Báðir gaflar hússins nýlega einangraðir og klæddir. Nýir gluggar í svefnherbergjum, nýtt parket og innihurðir.
Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur, snyrtileg flísalögð sameign og teppalagður stigagangur.
Komið er inn í afstúkaða forstofu með fataskáp.
Ágætt hol/gangur með parketi á gólfi.
Eldhús með ágætri lakkaðri innréttingu, parket, eldavél og vifta, uppþvottavél fylgir.
Þvottaherbergi með hillum inn af eldhúsi.
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt á svalir með frábæru útsýni yfir fjörðinn. Nýr gluggi á gafli.
Svefnálmugangur með parketi á gólfi, tvö rúmgóð svefnherbergi,
Stærra svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum, nýlegur gluggi í herberginu.
Annað minna en rúmgott herbergi með parketi á gólfi, nýlegur gluggi í herberginu.
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar með sturtu vaskur og vaskaskápur. Nýr gluggi á baði.
Sérgeymsla með hillum á jarðhæð er skráð 6,3 m². Íbúðin sjálf er skráð 93,1 m².
Hjóla/vagnageymsla og þurrkherbergi er í sameign.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.