












Lýsing
Miklaborg kynnir: Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.
Íbúð 401 er 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á 4. hæð með stórum þaksvölum, bílskúr og stæði í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi, tvær stofur, baðherbergi og gestasnyrting ásamt 63,4 fm þaksvölum með frábæru útsýni til borgarinnar, Snæfellsjökuls og víðar. Einstök eign. Litaþema er Kasmír grár. Íbúðin afhendist fullbúinn án megingólfefna.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur. Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
Sjá nánar www.eirhofdi.is
Nánari upplýsingar veitir Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Hjónaherbergi: er með fataskápum er ná upp í loft. Hjónaherbergið er sérstaklega rúmgott.
Svefnherbergin: Tvö svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir.
Þaksvalir: 63 fm þaksvalir út frá stofu með frábæru útsýni til borgarinnar, Snæfellsjökuls og víðar.
Baðherbergi: er flísalagt með gæðaflísum, sturtu og með vegghengdri salernisskál frá GROHE með mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki eru frá GROHE.
Gestasalerni: er með vegghengdri salernisskál frá GROHE með mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Geymsla: er 8,7 fm
Bílskúr: 25,8 fm bílskúr í lokaðri bílgeymslu
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B08.
Nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Íris Anna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is