Lýsing
Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. kynna til sölu eignina Rauðagerði 64, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 203-5551 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi.
Rauðagerði 64 er einstaklega fallegt einbýlishús. Tvær íbúðir eru í húsinu, bílskúr ásamt stóru rými sem hægt væri að breyta í íbúð. Íbúð á hæð er 4ra herbergja með vönduðum innréttingum, íbúð á jarðhæð er 2ja herbergja með sérinngangi. Lóð 507 fm með skjólgóðum gróðri. Eignin er á einu fastanúmeri og selst í einu lagi.
Eignin er skráð samkvæmt fasteignayfirliti 280,8 fm.
Aðalíbúð á hæð: 140,4 fm
Aukaíbúð á jarðhæð: 58 fm
Bílskúr ásamt alrými: 82,4 fm (mögulegt að breyta í aukaíbúð)
Nánari lýsing fyrir íbúð á hæð, skráð stærð 140,4 fm
Gólfefni: Forstofa og bað eru flísalögð, eldhús, boðstofa, hol, gangur og herbergi eru parketlögð, teppi á stofu og flísar kringum arinn, epoxy á vaskahúsi.
Forstofa: Með stórum fataskáp.
Hol: Með setukrók sem er afstúkaður með viðarskilrúmi frá herbergisgangi.
Stofa: Rúmgóð stofa með arin, útgengt á stórar svalir sem snúa í suðvestur.
Borðstofa: Innaf stofu og við hliðina á eldhúsinu er borðstofa, sem er stúkuð af með viðarskilrúmi frá stofu. Á milli borðstofu og eldhúss er innbyggð rennihurð.
Eldhús: Með viðarinnréttingu, efri og neðri skápum og borðkrók.
Herbergi 1 og 2: Herbergin eru hlið við hlið innaf forstofu vestan megin í húsinu.
Baðherbergi: Viðarinnrétting með efri og neðri skápum, ljós borðplata með tveimur vöskum, baðkar og opnanlegur gluggi. Veggir flísalagðir upp að innréttingu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp.
Sjónvarpshol: Innst í alrými ásamt gangi og setustofu er sjónvarpshol. Útgengt á svalir.
Vaskahús: Í endanum á herbergisgangi er stórt vaskahús með epoxy gólfefni.
Annað: Innihurðir eru frá JP innréttingum, skilrúm í stofu frá Árfellsskilrúm og eldhús- og baðinnréttingar sérsmíðaðar.
Nánari lýsing íbúð á jarðhæð, skráð stærð 58 fm:
Forstofa/hol: Gengið inn í flísalagt hol með fatahengi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu, efri skáp, opnanlegur gluggi.
Eldhús: Rúmgott með nýrri innréttingu, borðkrók.
Hjónaherbergi: Með fataskáp.
Stofa: Rúmgóð með gluggum meðfram suðurhlið
Vaskahús: Með flísalögðu gólfi, tengingum fyrir þvottavél, niðurfall í gólfi, opnanlegur gluggi.
Annað: Íbúðin er nýstandsett með nýrri IKEA eldhúsinnréttingu, nýju gólfefni og gólflistum, flísum á holi og nýmáluð.
Nánari lýsing bílskúr og alrými á jarðhæð:
Bílskúr ásamt alrými á jaðhæð er 82,4 fm. Opna rýmið er stúkað af að hluta í geymslur, vinnurými og WC aðstöðu með léttum veggjum, sem hægt væri að breyta í íbúð..
Eignin Rauðagerði 64, 108 Reykjavík gæti höfðað til eftirfarandi hópa kaupenda:
Fjölskyldur – Stærri fjölskyldur sem vilja rúmgóða eign með séríbúð fyrir unglinga, ömmu/afa eða til útleigu.
Fólk sem vill hafa tekjur af aukaíbúð – Hjón eða einstaklingar sem vilja nýta aðra íbúðina til útleigu til að lækka greiðslubyrði.
Þeir sem vilja sameina heimili og atvinnustarfsemi – Húsið gæti hentað þeim sem vilja nota neðri íbúðina eða bílskúrsrýmið sem vinnustofu eða skrifstofu.
Aðilar sem leita að sérbýli með skjólgóðri lóð – Húsið býður upp á friðsælt umhverfi með gróinni lóð og stórum svölum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.