Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Vista
svg

124

svg

109  Skoðendur

svg

Skráð  4. apr. 2025

fjölbýlishús

Engjaland 4

800 Selfoss

72.600.000 kr.

799.559 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2527207

Fasteignamat

53.800.000 kr.

Brunabótamat

56.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2024
svg
90,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax
svg
Heldri borgarar

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Vönduð og vel skipulögð 90,8m2 íbúð merkt 103 á jarðhæð í nýju fjölbýli fyrir 55 ára og eldri á góðum stað í austurhluta Selfoss.
Húsið er staðsteypt, klætt að utan með viðhaldslítilli álklæðningu, gluggar og hurðir eru ál/tré.
Í húsinu eru 14 íbúðir, lyfta er í húsinu og er húsið fullfrágengið að innan sem utan.
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.
Loftskiptikerfi með einfaldri stýringu er í íbúðinni.
Nánari lýsing:
Forstofan er parketlögð og þar er góður fataskápur.
Herbergin eru bæði parketlögð, í hjónaherbergi er stór fataskápur.
Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er gólfsturta með innbyggðum blöndunartækjum og falleg innrétting með steinborðplötu. Þar er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfhiti er á baðherbergi.
Í eldhúsinu er rúmgóð innrétting með vönduðum tækjum og steinborðplötu. 
Stofan er í björtu opnu rými við hlið eldhússins en þar er útgengt á svalir.
Svalirnar eru 17,8 m2, yfirbyggðar með svalalokun.
Geymsla þessarar íbúðar er í kjallara og er hún 7.9m2.
Íbúðinni fylgir einkastæði sérmerkt íbúðinni framan við húsið og er það steypt og með hitalögn.
Vandaðar innréttingar frá HTH eru í öllum íbúðum og eru heimilstæki frá Ormson. Gólfefni koma frá Parka. Steinn á borðum kemur frá S. Helgason.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.
Sýnum samdægurs!


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 2.700,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone